
Akademias
Ofurkraftar með gervigreind
Gervigreind getur orðið einn öflugasti samstarfsmaðurinn í daglegu starfi – ef við kunnum að nýta hana rétt. Í námskeiðinu Ofurkraftar með gervigreind lærir þú hagnýtar aðferðir til að fá meira út úr gervigreind, vinna hraðar og betur og nýta hana á öruggan og markvissan hátt.
Námskeiðið er fyrir allt starfsfólk, óháð starfi eða fyrri reynslu af gervigreind. Áherslan er á aðferðir sem hægt er að taka strax í notkun í raunverulegum verkefnum.
Námskeiðið skiptist í fimm hluta
- Ofurfyrirmæli – Lærðu að skrifa skýr og markviss fyrirmæli sem skila betri svörum. Þú kynnist einföldum aðferðum sem gera samskiptin við gervigreind skilvirkari og spara tíma.
- Ofursamhengi – Lærðu að gefa gervigreind réttar upplýsingar um verkefnið, starfið og fyrirtækið. Með betra samhengi verður hún síður almennur ráðgjafi og meira eins og samstarfsmaður sem skilur verkefnið.
- Ofurdómgreind – Gervigreind er öflug en ekki óskeikul. Lærðu að meta svör hennar á gagnrýninn hátt, koma auga á veikleika og vita hvenær þú getur treyst niðurstöðunum – og hvenær þú þarft að staldra við.
- Ofurflæði – Lærðu að koma gervigreind inn í daglegt vinnuflæði og sjálfvirknivæða endurtekin verkefni. Markmiðið er að minnka handavinnu og skapa meira rými fyrir þau verkefni þar sem þú skapar mest verðmæti.
- Ofurteymi – Lærðu hvernig þekking og góðar gervigreindarlausnir geta nýst öllu teyminu. Þú kynnist leiðum til að deila þekkingu, samræma vinnubrögð og byggja upp sameiginlega gervigreindaraðstoðarmenn.
Að námskeiði loknu hefur þú öðlast hagnýta færni til að gera gervigreind að raunverulegum ofurkrafti – fyrir þig, teymið þitt og vinnustaðinn.
Um Akademias
Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð fyrir atvinnurekendur
190.000 kr. + vsk.
12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.
Önnur námskeið sem gætu hentað
.png%3Frepresentation%3Dlarge&w=3840&q=75)
Símenntun Háskólans á Akureyri
Meistaragráða í Verkfræði í samstarfi við UHI
1.850.000 kr.

Símenntun Háskólans á Akureyri
Exploring AI in Higher Education - Staff training days at UNAK - November
75.000 kr.

Símenntun Háskólans á Akureyri
Exploring AI in Higher Education - Staff training days at UNAK in October
75.000 kr.