Meistaragráða í Verkfræði í samstarfi við UHI

Símenntun Háskólans á Akureyri

Meistaragráða í Verkfræði í samstarfi við UHI

Yfirlit

📌 Ertu að leita að leiðum til að dýpka þekkingu þína og færni í verkfræði?

Símenntun HA býður nú upp á Meistaranám í verkfræði í 100% fjarnámi í samstarfi við University of the Highlands and Islands (UHI) í Skotlandi. Þrjár leiðir eru í boði:

• MSc Mechanical Engineering

• MSc Electrical Engineering

• MSc General Engineering

Námið er vottað af The UK Engineering Council and the Institution of Engineering and Technology (IET) í Bretlandi og er sett upp sem 100% fjarnám frá grunni. Hægt er að velja á milli þess að taka námið í fullu námi (e. Full time) eða að hluta til (e. Part-time).

Námið, sem spannar þrjú misseri eða lengur (ef valið er part-time nám), fer alfarið fram á netinu og er sett upp frá grunni sem fjarnám fyrir vinnandi fólk. Allir nemendur í náminu eru í fjarnámi og hittast á fjarfundum (sem eru þó valkvæðir). Fjarfundirnir eru utan hefðbundins vinnutíma og flest öll verkefni einstaklingsverkefni svo þú vinnur á þínum tíma, óháður öðrum nemendum.

UHI er framsýnn háskóli sem er staðsettur á nokkrum stöðum í Skotlandi, nýtir sérstöðu sína í að bjóða ferska nálgun á háskólanám, allt frá grunnnámi upp í Phd gráður. Símenntun HA hefur frá árinu 2020 verið í samstarfi við skólann um meistaranám í MBA, mannauðsstjórnun og leiðtogafærni í heilbrigðisþjónustu.

Í náminu njóta nemendur tæknilegrar aðstoðar Símenntunar Háskólans á Akureyri ásamt almennri handleiðslu þegar við á.

Þar sem námið er alfarið í höndum Unviersity of Higlands and Islands fer kennslan fram á ensku.

Í október ár hvert er útskriftarhátíð og gefst þeim nemendum sem hafa lokið náminu kostur á að fara til North, West and Hebrides í Skotlandi og taka þátt í henni.

Námið er lánshæft hjá Menntasjóði íslenskra námsmanna og er einnig niðurgreitt af öllum starfsmenntasjóðum landsins.

Hagnýtar upplýsingar

M.Sc. í Verkfræði – Sveigjanlegt og framsækið meistaranám

Meistaranámið í verkfræði veitir þér alhliða skilning á hlutverki rannsókna, hönnunar, greiningar og bestunar í háþróuðum verkfræðistörfum. Þú munt öðlast þekkingu og færni til að nýta bæði hefðbundna og nýja tækni í þróun, framleiðslu, hönnun og rekstri verkfræðilegra lausna.

💡 Sérhæfing þín – þín leið
Þú getur sérsniðið námið að þínum áhugamálum með því að velja sérhæfðar námskeið innan ýmissa verkfræðigreina, þar á meðal vélaverkfræði, rafmagnsverkfræði og almenna verkfræði.

✅ Af hverju að velja þetta nám?

✔️ Þrjár mismunandi leiðir – Vélaverkfræði, rafmagnsverkfræði og almenn (fjölgreina) verkfræði
✔️ 100% fjarnám – Vertu á þínum hraða, lærðu hvar og hvenær sem er
✔️ Alhliða þekking í nútíma verkfræði og nýjustu tækni
✔️ Miklir starfsmöguleikar – Undirbýr þig fyrir fjölbreytt verkfræðistörf á alþjóðlegum markaði
✔️ Fagleg viðurkenning – Námið er vottað af Institution of Engineering and Technology (IET) og uppfyllir skilyrði fyrir skráningu sem Chartered Engineer (CEng) í Bretlandi
✔️ Sveigjanleiki í námi – Þú getur tekið einstök námskeið, unnið að PgCert, PgDip eða lokið fullu meistaranámi

Skráðu þig í dag og fáðu alhliða og hagnýta verkfræðimenntun sem býr þig undir framtíðina!

Fyrirkomulag fjarnáms

Við vitum að sveigjanleiki er mikilvægur, sérstaklega þegar það er tekið með vinnu. Þess vegna er hægt að stjórna sinni ferð, velja hvaða hraða maður vill vera á.

• Námið er í 100% fjarnámi

• Verkefni eru alla jafna einstaklingsverkefni (getur verið breyting á milli ára og áfanga)

• Engin skyldumæting á fundi

• Rafrænir fundir eru almennt utan hefðbundins vinnutíma

• Engin hópaverkefni sem gilda til einkunnar (getur verið breytilegt á milli ára)

• Öll próf eru rafræn

Fullt nám (e. Full time) spannar 3 annir og eru þá teknir þrír áfangar á fyrstu og annarri önn, á þriðju önn er meistararitgerðin unnin.

Hlutanám (e. Part-time) getur spannað mörg ár. Þú velur hvort þú vilt taka 1 eða 2 áfanga á hverri önn. Þegar 6 áföngum er lokið þá er hægt að byrja á ritgerðarsmíðinni og annað hvort taka hana á einni önn eða tveim önnum. Sem sagt, mikill sveigjanleiki í boði.

Efnisskrá

Áfangarnir eru mismunandi eftir því hvaða verkfræði lína verður fyrir valinu. Kjarnaáfangarnir eru þrír og þeir eru eins á öllum línunum.

Kjarnaáfangar á öllum línum:

• Design optimisation

• Design process and engineering project management

• Quantitative research methods and data analysis

• Master research project (ígildi þriggja áfanga)• To achieve the award of MSc you must successfully complete a research project/dissertation. This may be coordinated and conducted in conjunction with your employer in an area of specialisation within the field of mechanical, electrical or general engineering.

Valáfangar MSc Mechanical Engineering (þú velur þrjá valáfanga):

• Advanced applications in engineering (SC)

• Advanced engineering maths and modelling (SC)

• Advanced mechanical engineering (SC)

• Renewable energy technologies (S1)

• Safety case studies (S2)

• Tidal, wave and future energy (S2)

Valáfangar MSc Electrical Engineering (þú velur þrjá valáfanga):

• Advanced analogue electronics (S1)

• Advanced engineering maths and modelling (SC)

• Artificial neural networks and evolutionary algorithms (S1)

• Renewable energy technologies (S1)

• Safety case studies (S2)

• Tidal, wave and future energy (S2)

Valáfangar MSc General Engineering (þú velur þrjá valáfanga):

• Advanced analogue electronics

• Advanced applications in engineering

• Advanced engineering maths and modelling

• Advanced mechanical engineering

• Artificial neural networks and evolutionary algorithms

• Renewable energy technologies

• Safety case studies

• Tidal, wave and future energy

Hérna má sjá nánari lýsingar á öllum áföngum.

Inntökuskilyrði

4 ára Honours degree (240 ECTS einingar) eða BS-gráða (180 ECTS einingar) ásamt viðeigandi starfsreynslu úr verkfræðigeiranum.

Mat umsókna fer eftir árangri í fyrra námi og störfum eftir útskrift.

Dagskrá

UHI tekur inn nemendur í námið í janúar og september ár hvert.

Planning

Umsóknarferlið

Með því að ýta á "Skráning" hér á síðunni er aðeins verið að hefja umsóknarferlið og því ekki valið þar hversu marga áfanga ætlunin er að taka. Starfsmenn Símenntunar HA hafa í framhaldinu samband við umsækjendur með upplýsingum um næstu skref sem eru að senda ferilskrá og svo gera formlega umsókn í gegnum vef UHI.
Mat umsókna fer eftir árangri í fyrra námi og störfum eftir útskrift.

Ferli umsóknar er:

• Skrá sig hér hjá Símenntun HA

• Senda ferilskrá/grunngráðu skírteini til SMHA

• Sækja um formlega til UHI

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

1.850.000 kr.

25. jan 2027
Fjarnám
2,5 ár
Símenntun Háskólans á Akureyri