Styrkjareiknivél

Hvað kostar námskeiðið þig eftir styrk?

Mörg stéttarfélög bjóða einstaklingum og atvinnurekendum styrki til náms og starfsþróunar. Reglur og styrkupphæðir eru mismunandi eftir fræðslusjóðum og því getur verið erfitt að sjá hver raunverulegur kostnaður verður.

Styrkjareiknivél Mentora hjálpar þér að áætla mögulegan styrk og sjá hvað námskeiðið kostar eftir styrk.

Settu námskeið í körfuna og opnaðu styrkjareiknivélina þar. Veldu hvort þú sért að sækja um sem einstaklingur eða atvinnurekandi og reiknivélin sýnir þér áætlaðan styrk og raunkostnað.

Styrkur til atvinnurekanda hefur ekki áhrif á styrkjaréttindi starfsfólks hjá viðkomandi stéttarfélagi.

Einstaklingar

Stéttarfélög greiða stóran hluta af verði námskeiða fyrir félagsmenn. Reiknivélin sýnir áætlaðan styrk þíns félags.

Atvinnurekendur

Fræðslusjóðir endurgreiða atvinnurekendum hluta af kostnaði við fræðslu starfsfólks. Reiknivélin styður blandaða hópa með ólíkri félagsaðild.

Styrkir eftir stéttarfélagi

Hvað fræðslusjóður hvers félags greiðir félagsmönnum og atvinnurekendum. Leiðbeiningar fyrir atvinnurekendur