Persónuvernd

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: 17. október 2026

1. Ábyrgðaraðili

Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er SH ráðgjöf slf. (hér eftir „Mentora“), sem rekur mentora.is og selur námskeið á vefnum. Netfang fyrirspurna vegna persónuverndar: mentora@mentora.is.

2. Hvaða upplýsingar við söfnum

Þegar þú notar Mentora getum við safnað eftirfarandi:

  • Reikningsupplýsingar: Nafn, netfang, kennitala, sími (þegar bókun fer fram).
  • Fyrirtækjaupplýsingar: Fyrirtækjanafn og kennitala fyrirtækis við B2B kaup.
  • Bókunarsaga: Hvaða námskeið eru keypt, hvenær og fyrir hverja.
  • Póstlisti: Netfang, ef þú skráir þig á póstlista Mentora, og fornafn ef þú kýst að gefa það upp.
  • Samskipti við Mentora AI: Fyrirspurnir og svör í AI-ráðgjafanum, ásamt uppúrhluðnum skrám.
  • Tæknilegar upplýsingar: IP-tala, tegund vafra, tímastimplar, cookies og notkunargögn.

3. Til hvers við notum upplýsingarnar

  • Að afgreiða bókanir og skila þeim til viðkomandi fræðsluaðila.
  • Að reikna endurgreiðslur frá stéttarfélögum og fræðslusjóðum.
  • Að vinna greiðslur og gefa út reikninga (skv. VSK-reglum RSK).
  • Að veita AI-ráðgjöf og bæta þjónustuna.
  • Að senda staðfestingar, upplýsingar um bókanir og nauðsynleg samskipti.
  • Að senda fréttir af nýjum námskeiðum og fræðsluaðilum til þeirra sem hafa skráð sig á póstlistann.
  • Að uppfylla lagaskyldur (bókhald, VSK, skatta).

4. Lagaleg heimild vinnslu

Vinnsla persónuupplýsinga byggir á:

  • Samningi við þig þegar þú bókar námskeið (6. gr. 1. mgr. b-lið pvl.).
  • Lagaskyldu þegar við geymum bókhaldsgögn (bókhaldslög nr. 145/1994).
  • Lögmætum hagsmunum þegar við bætum þjónustuna, teljum heimsóknir á vefinn (sjá kafla 7) og verjumst svikum.
  • Samþykki þínu þegar þú skráir þig á póstlistann. Þú getur afturkallað það hvenær sem er með afskráningarhlekk neðst í hverjum pósti.
  • Samþykki þínu fyrir cookies sem eru ekki nauðsynlegar (t.d. greiningar-cookies).

5. Þriðju aðilar sem taka við gögnum

Mentora deilir upplýsingum með eftirfarandi þjónustuveitendum sem starfa fyrir okkar hönd:

  • Fræðsluaðilar — upplýsingar um skráningu eru sendar til þess fræðsluaðila sem annast kennslu námskeiðsins (t.d. Símenntun HÁ) svo hann geti skráð þátttakanda og haft samband með nánari upplýsingum. Fyrir námskeið þar sem Mentora er söluaðili er fræðsluaðilinn vinnsluaðili gagnanna fyrir okkar hönd.
  • Akademias (og aðrir direct-billing fræðsluaðilar) — fyrir námskeið sem Akademias innheimtir sjálft (rafræn námskeið úr Vinnustaðaskólanum) sendum við þeim nauðsynleg gögn (nafn, netfang, sími, kennitala fyrirtækis) svo þeir geti gefið út reikning eða virkjað aðgang. Þar er Akademias sjálfstæður ábyrgðaraðili gagnanna eftir að þau eru send og hans persónuverndarstefna og vinnslusamningur gilda um meðferðina — sjá akademias.is/vinnslusam.
  • Greiðslugátt og færsluhirðir — kortagreiðslur eru unnar í gegnum viðurkennda greiðslugátt (Verifone) og færsluhirði (Íslandsbanki) sem Mentora hefur samning við. Þessir aðilar fá greiðsluupplýsingar; Mentora sér ekki og geymir ekki greiðslukortanúmer.
  • Supabase Inc. — hýsing gagnagrunns (Evrópu region).
  • Anthropic (Claude AI) — vinnsla AI-samræðna.
  • Vercel Inc. — vefhýsing og afhending vefsins.
  • Resend — sending á tölvupósti (staðfestingar o.fl.).
  • Brevo (Sendinblue SAS, Frakklandi) — umsjón póstlistans og sending fréttapósta. Fær aðeins netfang þeirra sem skrá sig á póstlistann.
  • LinkedIn Ireland Unlimited Company — mæling á árangri kynninga og markhópar fyrir auglýsingar á LinkedIn (LinkedIn Insight Tag). Aðeins virkt ef þú velur „Samþykkja allt“ í kökuborðanum.

Þar sem gagnavinnsla fer fram utan EES gerum við samninga sem tryggja lögbundið gagnavernd (t.d. Standard Contractual Clauses).

6. Geymslutími

  • Bókhaldsgögn (reikningar, bókanir tengdar greiðslum) eru geymd í 7 ár skv. kröfum RSK og bókhaldslaga.
  • Persónuupplýsingar utan bókhalds (samskipti við AI, notkunargögn, óvirk notandaskilríki) eru eyddar eftir 1 árs óvirkni.
  • Þú getur beðið um eyðingu fyrr — sjá kafla 8 um réttindi þín.

7. Cookies og heimsóknatalning

Vefurinn notar cookies fyrir nauðsynlega virkni (innskráningu, körfu) og valfrjálsar cookies fyrir greiningar og markaðsstarf. Cookie-banner birtist við fyrstu heimsókn þar sem þú getur valið hverjar þú samþykkir.

Ef þú velur „Samþykkja allt“ notum við auk þess:

  • LinkedIn Insight Tag — segir LinkedIn að þú hafir heimsótt vefinn svo við getum mælt árangur kynninga þar og birt þér auglýsingar Mentora síðar.
  • mentora_utm — ef þú komst inn á hlekk úr kynningu (t.d. færslu á LinkedIn) munum við í 30 daga hvaða kynning það var, og skráum hana með bókun eða smelli yfir til fræðsluaðila. Þannig sjáum við hvaða kynningar skila árangri.

Heimsóknatalning án vafrakaka. Óháð vali í kökuborðanum teljum við sjálf heimsóknir á vefinn, til að sjá hvaða síður og námskeið eru skoðuð, hvaðan gestir koma og hvernig gengur að finna og bóka námskeið. Talningin vistar hvorki kökur né aðrar upplýsingar í vafranum þínum og geymir ekki IP-tölu. Í staðinn reiknum við óafturkræft auðkenni úr IP-tölu og tegund vafra ásamt slembigildi sem er skipt út og eytt á hverjum sólarhring. Þannig er hægt að telja gesti innan dags, en ekki að þekkja þig aftur næsta dag eða rekja hver þú ert.

Við skráum hvaða síður eru skoðaðar og hve lengi, leitarorð í námskeiðaleit, notkun styrkjareiknivélarinnar og Mentora AI (en ekki innihald samtala), hvaða námskeið eru sett í körfu og frá hvaða vef eða kynningu heimsóknin kom, auk grófrar tegundar tækis (sími, spjaldtölva eða tölva) og lands. Engin nöfn, netföng eða kennitölur fylgja.

Ef þú kaupir námskeið tengjum við kaupin við heimsóknina sem leiddi til þeirra, svo við sjáum hvaða kynningar skila árangri. Fræðsluaðilar geta fengið frá okkur samantektir, til dæmis hve oft námskeið þeirra voru skoðuð, en aldrei upplýsingar um einstaka gesti.

8. Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum áttu rétt á:

  • Aðgangi að þeim upplýsingum sem við höfum um þig.
  • Leiðréttingu rangra upplýsinga.
  • Eyðingu upplýsinga („rétt til gleymsku“) þar sem lög heimila.
  • Takmörkun eða andmælum við vinnslu.
  • Flutningi gagna til annars þjónustuveitanda.
  • Að kvarta til Persónuverndar (personuvernd.is).

Sendu beiðni á mentora@mentora.is og við bregðumst við innan 30 daga.

9. Öryggi

Við notum viðurkenndar öryggisráðstafanir — dulkóðun í geymslu og flutningi (TLS), aðgangsstýringu á gagnagrunn (RLS), öryggis-headers (CSP, HSTS) og reglulegt öryggis-audit. Ef atvik verður sem hefur áhrif á persónuupplýsingar þínar tilkynnum við það innan 72 klst. skv. kröfum GDPR.

10. Breytingar á stefnu

Þessi stefna getur uppfærst án fyrirvara. Verulegar breytingar verða tilkynntar með tölvupósti eða áberandi hætti á vefnum. Dagsetning „síðast uppfært“ endurspeglar nýjustu útgáfu.

11. Samband

Fyrirspurnir um persónuvernd eða beiðnir um réttindi:
SH ráðgjöf slf.
mentora@mentora.is