Samstarfsaðilar
Leiðandi fræðsluaðilar á Íslandi
Mentora sameinar námskeið frá stærstu og mest metnu fræðsluaðilum landsins — allt undir einu þaki. Hér að neðan sérðu hverjir eru þátttakendur í dag.
Akademias
Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.
Skoða nánarEndurmenntun Háskólans á Bifröst
Endurmenntun Háskólans á Bifröst býður upp á fjölbreytt námskeið og styttri námsleiðir fyrir þau sem vilja efla þekkingu sína, þróa færni og taka forskot á framtíðina. Okkar sérstaða er öflugt fjarnám sem mætir þörfum þeirra sem eru á vinnumarkaði og vilja læra á eigin hraða.
Skoða nánarSímenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Skoða nánar