
Akademias
Microsoft Clipchamp
Clipchamp er myndvinnsluforrit sem gerir þér kleift að búa til og breyta myndböndum beint í vafranum þínum eða í Clipchamp forritinu sjáflu. Clipchamp er hluti af Microsoft svítunni en líka hægt að nálgast fría útgáfu þess fyrir notendur á netinu.
Með Clipchamp getur þú sameinað myndbönd, myndir og hljóðskrár, bætt við texta og áhrifum og vistað fullunnið myndband á tölvunni þinni. Það er hannað til að vera auðvelt í notkun, jafnvel fyrir þá sem hafa enga fyrri reynslu af myndbandsklippingu.
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
- Öðlist góða innsýn í viðmótið sjálft og helstu stillingar, geti búið til myndband með aðstoð gervigreindar og þekki notkun á sniðmátum
- Geti flutt inn efni til notkunar, geti unnið með efni á tímalínu og hvaða valmöguleikar eru í boði
- Fái innsýn í það hvernig hægt er að setja texta á tímalínu, geti búið til undirtexta, þekki hvernig hægt er að taka upp myndband og hvernig hægt er að breyta texta í talað mál.
Fyrir hverja?
Clipchamp er fyrir alla sem vilja búa til og breyta myndböndum á auðveldan hátt. Það er hentugt fyrir byrjendur, smáfyrirtæki, nemendur og kennara.
Um Akademias
Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð fyrir atvinnurekendur
190.000 kr. + vsk.
12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.
Önnur námskeið sem gætu hentað
.png%3Frepresentation%3Dlarge&w=3840&q=75)
Símenntun Háskólans á Akureyri
Meistaragráða í Verkfræði í samstarfi við UHI
1.850.000 kr.

Símenntun Háskólans á Akureyri
Exploring AI in Higher Education - Staff training days at UNAK - November
75.000 kr.

Símenntun Háskólans á Akureyri
Exploring AI in Higher Education - Staff training days at UNAK in October
75.000 kr.