
Akademias
Microsoft 365
Á þessu námskeiði er mikilvægt að átta sig á því að hér er um grunnnámskeið að ræða í Microsoft 365. Flestir þekkja Office pakkann sem inniheldur flest þau forrit sem Microsoft býður upp á en með Microsoft 365 höfum við aðgang líka að skýjaskrifstofunni okkar. Með henni er átt við öll þau forrit sem eru í boði, einnig í vefútgáfu eða online. Á skýjaskrifstofunni okkar höldum við utan um allt sem tilheyrir okkur, hugmyndafræðin er þannig að hægt sé að nálgast allt á einum stað og þú getur unnið allsstaðar, kemst alltaf í öll gögnin þín, eina sem þarf er netsamband.
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
- læri hvað Microsoft 365 er, kynni sér vel viðmótið sjálft og hvar hægt er að nálgast gögnin
- þekki skýjageymslur, forrit og hvernig leitin virkar
- þekki Office forritin og skýið, hvernig notandi getur samhæft gögn á harðan disk og þekki Microsoft 365 forritið
Fyrir hverja?
Námskeiðið hentar öllum þeim sem eru að nota Microsoft 365 og vilja geta haft aðgang að allri sinni skýjaskrifstofu hvar sem er, hvenær sem er og unnið með gögnin sín ýmist í forriti eða í vefviðmóti.
Um Akademias
Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð fyrir atvinnurekendur
190.000 kr. + vsk.
12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.
Önnur námskeið sem gætu hentað
.png%3Frepresentation%3Dlarge&w=3840&q=75)
Símenntun Háskólans á Akureyri
Meistaragráða í Verkfræði í samstarfi við UHI
1.850.000 kr.

Símenntun Háskólans á Akureyri
Exploring AI in Higher Education - Staff training days at UNAK - November
75.000 kr.

Símenntun Háskólans á Akureyri
Exploring AI in Higher Education - Staff training days at UNAK in October
75.000 kr.