Fjarvinna með Microsoft 365

Akademias

Fjarvinna með Microsoft 365

Á þessu námskeiði er skoðað hvaða forrit innan Microsoft 365 henta í fjarvinnu. Við skoðum hvaða forrit henta í samvinnu, samskipti og fleira. Við skilgreinum hvaða forrit á að nota í hvað og hvernig þau eru hugsuð af Microsoft.

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi

  • öðlist góða innsýn í Microsoft 365 appið, geti nýtt sér forrit til samskipta eins og t.d. Teams á góðan hátt
  • kunni að halda fundi og skipuleggja inni í Teams og hvernig samvinnu er best háttað
  • þekki vel hvernig á að vista skjöl, þekki OneDrive, SharePoint og skjöl inni í Teams
  • geti deilt skjölum og fá innsýn í forritið Planner og hvernig það getur virkað í starfi

Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir notendur Microsoft 365 sem vilja vera öruggari í að nota fjarvinnutól Microsoft 365.
Byrjendum í Microsoft 365 er bent á að kynna sér námskeiðin um OneDrive, SharePoint, Teams og Planner.

Um Akademias

Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð fyrir atvinnurekendur

190.000 kr. + vsk.

12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.

Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.

Rafrænt
38 mín
Akademias