Næring ungbarna

Símenntun Háskólans á Akureyri

Næring ungbarna

Yfirlit

Rannsóknir sýna að fyrstu árin í lífi barns eru sérstaklega mikilvægur tími sem getur haft áhrif á vöxt, þroska og heilsu fram á fullorðinsár. Markmið þessa námskeiðs er að efla og fræða foreldra um næringu barna á þessu mikilvæga skeiði.

Hvenær hentar að taka námskeiðið:
Áherslan verður á fyrsta árið en mælt er með því að foreldrar taki námskeiðið þegar barnið er 3 - 7 mánaða.

Áherslupunktar:
-Hvenær skal byrja að gefa fasta fæðu?
-Barnið borðar sjálft, ráð til að hjálpa foreldrum að fara frá mauki yfir í erfiðari bita.
-Umræða um ofnæmi.
-Ráð við hægðatregðu.
-Hvaða næringarefni eru sérstaklega mikilvæg á fyrstu tveimur árunum?
-Hugmyndir að mat. Hvað skal varast og hvað ætti að hafa í huga við lestur á umbúðum?
-Stoðmjólk, þurrmjólk, vatn?

Hagnýtar upplýsingar

Kennari/fyrirlesari námskeiðsins er Laufey Hrólfsdóttir doktor í næringarfræði. Laufey er þriggja barna móðir og þekkir því vel á eigin skinni hversu stressandi þessi tími getur verið þegar foreldrar vilja passa upp á að gefa barninu sínu gott upphaf. „Þegar ég eignaðist elsta gaurinn minn varð ég hugfangin af næringarfræði og ákvað að fara í meistaranám á þessu sviði. Ég vildi fræðast meira um þetta mikilvæga tímabil - þ.e. læra meira um mikilvægi góðrar næringar á meðgöngu og fyrstu árunum. Þetta var svo ótrúlega spennandi að ég hélt áfram eftir meistaranámið og kláraði doktorspróf á þessu sviði."

„Ég hef rekist á mikið af misvísandi upplýsingum á netinu/samfélagsmiðlum og því byrjaði ég með þessi námskeið, aðalatriðið er að hjálpa foreldrum í gegnum þennan frumskóg af upplýsingum." segir Laufey sem hefur um árabil haldið svona námskeið og heldur einnig úti Facebook-síðunni Gott Upphaf - Næringarráðgjöf

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið er í 100% fjarnámi og er opið í 3 vikur. Þátttakendur fá aðgang að vef námskeiðsins, þar sem má finna upptökur af öllum fyrirlestrum. Einnig fylgir námskeiðinu vegleg rafbók þar sem má finna ítarlegar upplýsingar um helstu ráðleggingar, varnarorð, uppskriftir og hugmyndir að matarplani eftir aldri. Aðgangur að upptökunum er opinn í þrjár vikur en næringarrafbókin er opin þátttakendum í 6 mánuði. Með þessu fyrirkomulagi hafa foreldrar aðgang að ráðleggingum og uppskriftum í rafbókinni eftir námskeiðið.

Boðið er upp á einn fyrirspurnatíma í viku 2 af námskeiðinu (á fimmtudeginum kl. 17:00, tengill í gegnum námsvefinn) og gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi horft á fyrirlestrana áður og geti mætt í þennan tíma með spurningar sem Laufey svarar.

Efnisskrá

Markmið þessa námskeiðs er að efla og fræða foreldra um næringu barna á þessu mikilvæga skeiði.

Námskeiðið er í formi fyrirlestra en einnig verður umræðutími með kennara. Foreldrar geta því horft á efnið þegar það hentar þeim á þessum tveim vikum en umræðutíminn er ekki tekinn upp.

Í rafbókinni sem fylgir með má finna alls konar uppskriftir, upplýsingar um skammtastærðir, varnarorð og hugmyndir að matarplani eftir aldri.

Dagskrá

Námskeiðið opnar á fimmtudegi og tveimur vikum seinna á fimmtudegi kl. 17:00 er umræðufundur með Laufeyju Hrólfsdóttur kennara námskeiðsins. Upptökur fyrirlestra eru opnar í þrjár vikur. Næringarafbókin er opin í 6 mánuði.

Upphafsdagar næstu námskeiða*:

• 5. nóvember - umræðutími 19. nóvember kl. 17:00

• 3. desember - umræðutími 15. desember kl. 17:00

*með fyrirvara um ófyrirséðar breytingar

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

18.900 kr.

8. okt 2026
Rafrænt
3 vikur
Símenntun Háskólans á Akureyri
Næring ungbarna | Mentora