Að setja fólki mörk

Akademias

Að setja fólki mörk

Okkar daglega líf felur oftast í sér að vera í kringum annað fólk, hvort sem það er á vinnustað, í námi, á meðal fjölskyldu og vina eða einfaldlega ókunnugra í ýmsum aðstæðum. Í öllum tilvikum þar sem við erum að umgangast annað fólk, hvort sem við eigum í beinum samskiptum við það eða ekki, þá reynir á mörkin okkar. Sumir eru með skýr mörk á meðan aðrir eru markalausir. Sumir virða mörk annarra á meðan aðrir gera það ekki.

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi

  • þekki lykilatriði í tengslum við mörk, á hvaða sviðum þau birtast og hvernig við setjum þau
  • skilji að það að setja sér heilbrigð mörk hefur mjög jákvæð áhrif á sjálfstraust, öryggi og innri frið í umgengni við annað fólk
  • kynni sér mörk og markaleysi á gagnlegan og hnitmiðaðan hátt
  • þekki þrjár mismunandi tegundir marka og hvernig markaleysi getur haft áhrif á þessa þætti ásamt leiðum í tengslum við að setja skýr og heilbrigð mörk

Fyrir hverja?

Námskeiðið hentar öllum og sérstaklega þeim sem vilja styrkja eiginleika sína til að setja öðrum skýr og heilbrigð mörk, hvort sem er í vinnu eða einkalífi.

Um Akademias

Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð fyrir atvinnurekendur

190.000 kr. + vsk.

12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.

Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.

Rafrænt
29 mín
Akademias