
Símenntun Háskólans á Akureyri
Losaðu þig við loddaralíðan
Yfirlit
-Upplifir þú loddaralíðan í starfi?
-Glímir þú við sjálfsefa og ótta við að verða afhjúpuð/afhjúpaður sem svikahrappur þrátt fyrir afrek þín?
-Viltu finna þína rödd og efla sjálfstraust og áræðni?
-Vilt þú læra um loddaralíðan, hvernig hún birtist og hvaða áhrif hún hefur?
-Vilt þú læra að losa þig undan loddaralíðan?
Þá er þetta námskeið hannað fyrir þig!
Komdu með í umbreytandi ferðalag sem mun hjálpa þér að sigrast á loddaralíðan með aðstoð markþjálfunar.
Hagnýtar upplýsingar
Námskeiðinu er ætlað að valdefla þau sem eru að berjast við loddaralíðan, hjálpa þeim að byggja upp sjálfstraust, nærveru og hæfni á vinnumarkaði. Notast er við aðferðir markþjálfunar og kennslustundir eru sambland kennslu, hagnýtra æfinga og umræðna.
Námskeiðið er sett upp í þrjár 2 klst lotur þar sem við munum skoða fyrirbærið loddaralíðan, hvaðan hún kemur, hvernig hún birtist og hvaða áhrif hún hefur. Við munum einnig kynna okkur hagnýt verkfæri og æfingar sem auðvelda okkur að vinna bug á henni.
Námskeiðið byggir á markvissum kennslustundum, umræðum og æfingum. Markmiðið er að stuðla að persónulegum vexti þátttakenda og faglegri þróun ásamt auknu sjálfstrausti og sátt í starfi. Við munum fara í töluverða sjálfsvinnu, deila sögum og styrkja okkur til framtíðar.
Fyrirkomulag fjarnáms
3 x fjarfundir: Fyrirlestur + umræður
Æfingar milli kennslustunda
Efnisskrá
Á námskeiðinu er fjallað um:
-Hvað er loddaralíðan?
-Hvaðan kemur hún, hvernig birtist hún?
-Að bera kennsl á loddaralíðan hjá sjálfum sér og öðrum
-Að læra að sleppa loddaralúðanum
-10 skref til að losa sig við loddaralíðan
-Hagnýtar æfingar
Ávinningur:
-Skilja rætur - Þú uppgötvir hvaðan loddaralíðan kemur og hvernig hún birtist í þínu starfi
-Greina áhrif - Þú lærir hvernig loddaralíðan hefur áhrif á frammistöðu þína, samskipti og starfsframa
-Þróa hagnýtar aðferðir - Þú fáir verkfæri og tækni til að byggja upp sjálfstraust, seiglu og ákveðni í starfi
-Vaxa í starfi - Þú umbreytir sjálfsefa í sjálfstrú og stígir inn í starf þitt af öryggi og ákveðni. Náir sátt og lærir að nýta lærdóminn til áframhaldandi uppbyggingar í starfi.
Dagskrá
Námskeiðið fer fram á rafrænum fundum á mánudögum frá kl. 17-19.
Dagsetningar zoom funda:
9. nóvember
16. nóvember
23. nóvember
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
29.900 kr.
Önnur námskeið sem gætu hentað

Akademias
Hvað liggur á bakvið erfiða hegðun
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga

Akademias
Að koma sér upp úr sófanum
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga

Akademias
Að setja fólki mörk
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
9.000 kr. fyrir einstaklinga