
Símenntun Háskólans á Akureyri
Listmeðferð 1: Grunnnámskeið
Yfirlit
Langar þig að efla sköpunargáfu þína og skjólstæðinga þinna? Vilt þú skilja hvernig hugsanir og tilfinningar eru tjáðar með listsköpun? Óskar þú eftir að afla þér upplýsinga um hvernig mögulegt er að auka styrk, bæta líðan og efla námsfærni með myndsköpun?
Hagnýtar upplýsingar
Síðasti skráningardagur er 5. október 2026.
Markmið námskeiðsins er að:
• Kynna grunnaðferðir og hugmyndir listmeðferðar.
• Kynna myndsköpunaraðferðir sem efla sköpunargáfu, styrkja sjálfsmynd, stuðla að tengslum, auka félagsfærni og bæta líðan.
• Auka skilning á hvernig vandi, tilfinningar, hugsanir og aðstæður eru tjáðar í myndverkum.
• Þátttakendur kynnist sjálfum sér í gegnum eigið myndmál.
• Auka þekkingu á því hvernig mögulegt er að mynda tengsl með listsköpun.
• Auka þekkingu á því hvernig mögulegt er að efla minni og styrkja námsfærni með listsköpun.
Námskeiðið sem er ígildi 5 ECTS eininga verður kennt í tveimur lotum. Einstaklingar sem vilja freista þess að fá námskeiðið metið til eininga inn í meistaranám skulu skila verkefnum og mæta öðrum þeim kröfum sem slíkt nám krefst.
Ath. SMHA getur ekki ábyrgst að námskeiðið verði metið til eininga, það er undir þeim skóla sem sótt er um komið.
Ath.
Unnið er að því að koma á fót námi í listmeðferð sem miðað er við að verði viðurkennt af Félagi listmeðferðarfræðinga á Íslandi og að það veiti réttindi til að starfa við listmeðferð. Þetta námskeið mun verða metið upp í fyrirhugaða námsleið.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið verður haldið á staðnum í tveimur lotum.
Efnisskrá
Á námskeiðinu verður fjallað um grunnhugtök og aðferðir listmeðferðar. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, lestri, verkefnavinnu, umræðum og vinnustofum þar sem þátttakendur upplifa sköpunarferlið og þann möguleika sem það gefur. Þekking á eigin myndmáli eykur sjálfsmeðvitund og möguleika á að koma öðrum til aðstoðar þegar vandi steðjar að. Á námskeiðinu verða kynntar myndsköpunaraðferðir sem efla sköpunargáfu, styrkja sjálfsmynd, mynda tengsl, auka minni, auka félagsfærni, efla sjálfsþekkingu og bæta líðan. Ekki er þörf fyrir þekkingu á myndlist né reynslu af listsköpun.
Inntökuskilyrði
Námskeiðið er öllum opið, það eru ekki inntökuskilyrði. Námskeiðið sem er á meistarastigi er ætlað öllum áhugasömum um listmeðferð þar með töldum þeim sem vinna að því að bæta líðan, auka velferð og/eða að auðvelda fólki nám.
Dagskrá
Föstudagurinn 9. október frá kl. 14-19
Laugardagurinn 10. október frá kl. 10-17
Föstudagurinn 23. október frá kl. 14-19
Laugardagurinn 24. október frá kl. 10-17
Samtals 24 klst.
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
129.900 kr.
Önnur námskeið sem gætu hentað

Akademias
Hvað liggur á bakvið erfiða hegðun
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga

Akademias
Að koma sér upp úr sófanum
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga

Akademias
Að setja fólki mörk
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
9.000 kr. fyrir einstaklinga