
Símenntun Háskólans á Akureyri
Ísland alla leið
Yfirlit
Námið hefst 7. janúar 2027
Skráningarfrestur til 15. október 2026.
Leiðsögunámið Ísland alla leið er sniðið að þeim sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi. Námið okkar hefur verið vottað af BSÍ á Íslandi þess efnis að námið standist kröfur ÍST EN 15565:2008 – evrópsks gæðastaðals um hæfni leiðsögumanna og uppbyggingu þjálfunar- og réttindanáms í ferðaleiðsögn.
Leiðsögn erlendra ferðamanna hefur verið kennd við Símenntun Háskólans á Akureyri frá 2008.
Verklegur hluti námsins er í samstarfi við SBA-Norðurleið.
Hagnýtar upplýsingar
Meginmarkmið leiðsögunámsins
Meginmarkmið leiðsögunámsins er að nemendur öðlist staðgóða þekkingu og færni til að geta sinnt starfi leiðsögumanns af fagmennsku og í samræmi við Evrópustaðalinn ÍST EN 15565:2008.
Að námi loknu á nemandi að:
• Hafa tileinkað sér lykilfærni leiðsögumanns í samskiptum við ferðamenn og ferðaþjónustuaðila.
• Hafa skilning á þörfum fólks af ólíkum uppruna og geti mætt þörfum þess.
• Þekkja sérstöðu Íslands hvað varðar náttúru, sögu og menningu og vera fær um að miðla viðeigandi upplýsingum til ferðamanna þannig að upplifun þeirra verði jákvæð en raunhæf.
• Búa yfir víðtækri þekkingu á helstu ferðamannastöðum og leiðum og vita hvaða afþreying og þjónusta er í boði á hverjum stað.
• Geta aflað gagna fyrir fjölbreyttar ferðir með ólíka hópa ferðamanna um landið ásamt því að veita áreiðanlegar upplýsingar hverju sinni.
• Vera meðvitaður um helstu skipulagsþætti ferða, geta lagt mat á ferðagögn og mótað ferðir með leiðsögn um landið í samræmi við væntingar vinnuveitanda og gesta.
• Búa yfir fullnægjandi orðaforða og kunnáttu í því tungumáli sem leiðsagt er á.
• Vera meðvitaður um mikilvægi þess að fylgja ætíð settum öryggisreglum og vera til fyrirmyndar þegar kemur að umgengni við náttúruna, náttúruvernd og sjálfbærni.
• Hafa skilning á eðli ferðaþjónustunnar sem atvinnugrein, mikilvægi hennar og umfangi.
• Þekkja lög og reglugerðir sem tengjast störfum leiðsögumanna.
Einstaklingar sem hafa lokið námi í ferðamálafræðum og vilja bæta við sig leiðsögunámi geta sótt um að fá sambærilega áfanga metna inn í námið. Einnig geta eldri leiðsögumenn sótt um að sækja einstaka áfanga.
Leiðsögumenn sem starfa á Íslandi skulu hafa menntun í skyndihjálp og björgun í samræmi við gæðaviðmið SAF og leiðbeinandi reglur Ferðamálastofu um öryggismál. Til að útskrifast þurfa nemendur að hafa lokið 20 klukkustunda námskeiði í skyndihjálp/fyrstu hjálp. Nemendur þurfa að greiða fyrir það námskeið aukalega en á vormisseri 2028 mun Símenntun HA halda námskeið sem uppfyllir þær kröfur.
Nemendur sem útskrifast sem leiðsögumenn geta sótt um félagsaðild að Leiðsögn - stéttarfélagi leiðsögumanna.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námið spannar þrjár annir; vor 2027, haust 2027 og vor 2028.
• Námið er að stórum hluta fjarnám og spannar þrjár annir. Það er skipulagt þannig að mögulegt er að sinna því samhliða starfi og búa hvar sem er á landinu. Umfang námsins er 700-900 klukkustundir.
• Á hverri önn verða þrjár staðlotur á Akureyri sem nemendur eiga að mæta í, oftast frá fimmtudegi til sunnudags. Skyldumæting er í staðlotur.
• Fyrirlestrar eru teknir upp og verða aðgengilegir nemendum í kennsluvef námsins, hægt er að hlusta á þá hvenær sem er á meðan náminu stendur.
• Af og til má reikna með fjarkennslu í rauntíma.
• Vettvangs- og æfingaferðir eru skipulagðar yfir námstímann og endar námið á sex daga ferð um landið. Gert er ráð fyrir 100% þátttöku í þessum ferðum.
• Kennsla í leiðsögunáminu fer fram á íslensku.
• Nemendur eru þjálfaðir í framsetningu efnis á ensku og/eða þýsku en ekki er um eiginlega tungumálakennslu að ræða.
• Námið er aðlagað að nemendum sem eru að læra íslensku, hægt er að skila verkefnum og prófum á ensku.
Námið hefst með staðlotu fimmtudaginn 7. janúar 2027. Aðrar staðlotur á fyrstu önn eru áætlaðar 4. - 7. mars og 6. - 9. maí. Önnur önn hefst seinni hluta ágústmánaðar 2027 og lýkur í byrjun desember. Þriðja önn hefst í byrjun janúar 2028 og lýkur í byrjun maí 2028 og verður útskrift í enda maí 2028 á Akureyri. Sumarið 2027 þurfa nemendur að reikna með að verja 3-5 dögum í verkefnavinnu og kynnisferðir.
Efnisskrá
Hægt er að nálgast kennsluskrá námsins hér.
Í kennsluskrá eru nánari upplýsingar um einstök námskeið og hvenær þau eru kennd.
Inntökuskilyrði
• Tuttugu ára aldurstakmark.
• Stúdentspróf, sambærileg menntun eða raunfærnimat.
• Gott vald á íslensku.
• Standast inntökupróf í því tungumáli sem umsækjandi hyggst nota í leiðsögn og skólinn getur boðið upp á þjálfun í.
Inntökupróf í erlendum tungumálum (ensku og þýsku) verða haustið 2026. Inntökupróf er innifalið í staðfestingargjaldi. Nánari tímasetning er auglýst síðar.
Dagskrá
Kennslutilhögun
Námið skiptist á þrjár annir og er skipulagt þannig að hægt sé að sinna því samhliða starfi og óháð búsetu. Á hverri önn eru þrjár staðlotur en þess á milli stunda nemendur nám í gegnum Canvas kennsluvef skólans. Fyrirlestrar og annað kennsluefni verður aðgengilegt á kennsluvefnum og munu fyrirlestrar birtast nemendum þar á mánudögum og þriðjudögum. Að auki munu kennarar í einstökum námskeiðum boða til fjarfunda með nemendum.
Skyldumæting er í staðlotur á Akureyri sem eru alla jafnan frá hádegi á fimmtudegi til seinni parts á sunnudegi en þá er m.a. farið í æfingaferðir. Sömuleiðis verða allir nemendur að taka þátt í hringferð um landið í lok vorannar 2028.
Kennsla fer fram á íslensku en hægt er að skila verkefnum og prófum á ensku eða þýsku fyrir þau sem eru að læra íslensku.
Til að útskrifast þurfa nemendur að hafa lokið 20 klukkustunda námskeiði í skyndihjálp/fyrstu hjálp. Símenntun HA mun standa fyrir slíku námskeiði á vorönn 2028 en nemendur þurfa að greiða sjálfir fyrir það.
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
850.000 kr.
