.png%3Frepresentation%3Dlarge&w=3840&q=75)
Símenntun Háskólans á Akureyri
Hugrekki í samskiptum á vinnustað
Yfirlit
Þóknun eða fagmennska? - Þegar friðurinn kostar of mikið
Á mörgum vinnustöðum ríkir óskrifuð regla um að „halda friðinn“. Forðast er að taka erfið samtöl, ágreiningur er látið krauma undir yfirborðinu og vonast er til að hlutirnir leysist af sjálfu sér.
En hvað gerist þá?
Spenna safnast upp, óánægja eykst og samskipti verða óskýr. Með tímanum getur þetta grafið undan trausti, liðsheild og árangri – jafnvel þó allir séu að reyna að vera „góðir“.
Á þessu námskeiði er sjónum beint að því sem oft er kallað meðvirkni í samskiptum – þegar við þóknustum, forðumst árekstra eða tökum of mikla ábyrgð á líðan annarra, á kostnað fagmennsku og skýrleika.
Námskeiðið verður haldið í Háskólanum á Akureyri
Hagnýtar upplýsingar
Nemendur fá sendan spurningalista fyrir námskeiðið sem þeir þurfa að svara.
Námskeiðið er ekki eingöngu fyrir stjórnendur, heldur fyrir alla sem starfa með öðrum og vilja bæta samskipti, setja skýrari mörk og taka ábyrgð á eigin hlutverki í teymum.
Þátttakendur læra að:
• þekkja merki meðvirkni í samskiptum
• greina hvenær faglegur ágreiningur er að verða persónulegur
• taka á málum fyrr – áður en þau stækka
• tjá sig skýrt og faglega, jafnvel í krefjandi aðstæðum
• setja heilbrigð mörk án þess að raska samstarfi
• skilja ábyrgð sína – og annarra – í samskiptum
Einnig er fjallað um mikilvægi þess að geta verið til staðar fyrir aðra án þess að ýta undir vandamál. Að hlusta, sýna skilning – en á sama tíma halda skýrleika og ábyrgð.
Kennslan byggir á fræðslu og hagnýtum verkefnum þar sem þátttakendur vinna með raunverulegar aðstæður úr sínu umhverfi. Vinnubók fylgir námskeiðinu og nýtist sem verkfæri til að takast á við algengar áskoranir í samskiptum á vinnustað.
Markmiðið er að styrkja fólk í að færa sig frá því að þóknast og forðast – yfir í að takast á við aðstæður af skýrleika, ábyrgð og fagmennsku.
Því stundum er það sem virðist halda friðnum – einmitt það sem er að grafa undan honum.
Efnisskrá
Nemandi mun eflast varðandi eiginleika í sínu fari sem eru að „þóknast“ frekar en að taka á vandamálum sem koma upp varðandi mannlega hegðun innan vinnustaða. Kennsla fer fram með fræðslu og vinnubók fyrir nemandann. Vinnubókin er verkfæri fyrir nemandann til að verða betri í að taka á algengum vandamálum sem koma upp í samskiptum innan liðsheilda.
Inntökuskilyrði
Það eru engin inntökuskilyrði.
Dagskrá
Námskeiðið verður haldið 14. október frá kl. 13-16 í Háskólanum á Akureyri.
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
59.000 kr.
Önnur námskeið sem gætu hentað

Akademias
Krefjandi starfsmannaviðtöl
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
14.000 kr. fyrir einstaklinga

Akademias
Aðferðafræði Coaching fyrir stjórnendur
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga

Akademias
Árangursrík samskipti og endurgjöf
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga