
Akademias
Krefjandi starfsmannaviðtöl
Fátt er mikilvægara fyrir vinnustaði en að þar sé góður starfsandi og gagnleg samskipti. Það er eðlilegur hluti af starfsemi fyrirtækja og stofnana að eiga í samskiptum við starfsfólk og þegar upp koma vandamál þurfa stjórnendur að stíga inn. Rannsóknir sýna að talsverður hluti stjórnenda telur krefjandi starfsmannaviðtöl erfiðasta hluta vinnu sinnar. Oft vonar fólk að vandamálin hverfi með tímanum og forðast að takast á við samtöl sem nauðsynlegt er að taka. Hætt er við því að það valdi enn meiri vanda og hafi afar slæm áhrif á starfsanda. Að sama skapi geta illa undirbúin samtöl leitt til þess að vandinn aukist.
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
- þekki einfalda og hagnýta þætti til að ná góðum árangri í krefjandi starfsmannasamtölum
- skilji mikilvægi þess að taka nauðsynleg starfsmannasamtöl, góð eða miður góð til að starfsandi sé viðeigandi og ekki komi til frekari vandamála
- geti undirbúið sig á viðeigandi hátt fyrir krefjandi viðtal og fær til þess ráð
- geti tekið viðtalið og hvernig ber að huga að eftirfylgni þar á eftir
Fyrir hverja?
Á þessu námskeiði er fjallað um einfalda og hagnýta þætti þegar kemur að því að ná góðum árangri í krefjandi starfsmannaviðtölum. Námskeiðið er fyrir alla stjórnendur sem vilja ná því besta fram í starfsfólkinu sínu og auka líkur á farsælli lausn krefjandi samskipta.
Um Akademias
Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð fyrir atvinnurekendur
190.000 kr. + vsk.
12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.
Önnur námskeið sem gætu hentað
.png%3Frepresentation%3Dlarge&w=3840&q=75)
Símenntun Háskólans á Akureyri
Hugrekki í samskiptum á vinnustað
59.000 kr.

Akademias
Aðferðafræði Coaching fyrir stjórnendur
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga

Akademias
Árangursrík samskipti og endurgjöf
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga