
Símenntun Háskólans á Akureyri
Gæðastjórnun – ISO 9001
Yfirlit
Gæðastjórnun eykur á ánægju viðskiptavina, dregur úr mistökum og sóun og hefur þannig jákvæð áhrif á rekstur og stjórnun. Á námskeiðinu er fjallað um hugmyndafræði gæðastjórnunar og tekið mið af innihaldi staðalsins ISO 9001 og hvernig það snertir daglega starfsemi. Þátttakendur fá í veganesti góð ráð til að setja upp gæðastjórnunarkerfi, innleiða það og vinna eftir því. Námskeiðið hentar fyrir alla áhugasama um gæðastjórnun, sérstaklega hagnýtt fyrir stjórnendur sem þurfa að styðja við innleiðingu og notkun á gæaðstjórnunarkerfum. Hentar einnig þeim sem vinna samkvæmt gæðastjórnunarkerfi, jafnlaunakerfi, öryggisstjórnunarkerfi, upplýsingaöryggiskerfi eða annað sem byggir á stöðlum.
Fyrirkomulag fjarnáms
Alfarið fjarnám. Fjórir fyrirlestrar á netinu (upptökur), tveir zoom fundir með kennara þar sem verður tæpt á helstu atriðum úr fyrirlestrum, spurningum svarað og gefið færi á umræðum.
Efnisskrá
Námsefni eru fyrirlestrar á netinu, gott er að hafa aðgang að ISO 9001 staðlinum en alls ekki nauðsynlegt. Bent verður á fróðlegt efni sem er aðgengilegt á netinu og bókasöfnum. Nemendur munu:
• fá skilning á því hvernig gæðastjórnun skilar árangri
• öðlast hvata til að taka upp gæðastjórnun
• öðlast þekkingu á ISO 9001
• fá praktísk ráð til að koma upp gæðastjórnunarkerfi
Dagskrá
Námskeiðið verður haldið 26. október - 9. nóvember 2026.
Þann 26. október opnast fyrir fyrstu tvo fyrirlestrana og 2. nóvember opnast fyrir síðari tvo. Zoom fundir verða miðvikudaginn 28. október kl.16:30-17:30 og miðvikudaginn 4. nóvember kl.16:30-17:30.
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
45.000 kr.
Önnur námskeið sem gætu hentað

Akademias
Flokkun verkefna
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga

Akademias
Hraðlestur á vinnustað
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga

Akademias
Innleiðing jafnlaunakerfa og jafnlaunavottun
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga