
Endurmenntun Háskólans á Bifröst
Stafræn fatahönnun
Markmið námsins er að nemendur geti nýtt aðferðir stafrænnar fatahönnunar til að koma hugmyndum sínum um tísku í framkvæmd. Þeir læra um hönnun, stafræna sníðagerð, undirbúning fyrir framleiðslu og stíliseringu. Að loknu námi hafa nemendur góðan grunn í fatahönnunar aðferðum með stafrænni tækni. Þeir sem ættu að hafa áhuga á námskeiði eins og þessu eru t.d útskrifaðar fatahönnuðir, bæði þeir sem eru á vinnumarkaði og þeir sem vilja endurmenntun til að styrkja stöðu sína á atvinnumarkaði. Námið gæti einnig höfðað til klæðskera sem eru í námi og vilja tileinka sér nýjustu aðferðir. Eins þeir sem hafa lokið námi í framhaldsskóla úr fatahönnun, tölvuleikjagerð, iðnnámi eða listnámi og huga að frekara hönnunarnámi. Boðið verður tveggja klukkustunda Teams fund einu sinni í viku þar sem stjórnandi námsleiðarinnar leiðbeinir nemendum og aðstoðar í verkefnum. Stjórnandi námsleiðarinnar er Björg Ingadóttir hjá Spaksmannspjörum, einn fremsti fatahönnuður hér á landi.
Forkröfur
Þátttakendur þurfa að kaupa sér aðgang að forritinu Clo3d: CLO | 3D Fashion Design Software Að loknu námi Nemandi sem lýkur náminu fær staðfestingu á námslokum.
Kennari
Björg Ingadóttir
Um Endurmenntun Háskólans á Bifröst
Endurmenntun Háskólans á Bifröst býður upp á fjölbreytt námskeið og styttri námsleiðir fyrir þau sem vilja efla þekkingu sína, þróa færni og taka forskot á framtíðina. Okkar sérstaða er öflugt fjarnám sem mætir þörfum þeirra sem eru á vinnumarkaði og vilja læra á eigin hraða.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
490.000 kr.
Skráning og greiðsla fer fram á vef Endurmenntun Háskólans á Bifröst. Þú ferð á þeirra síðu til að klára kaupin.
