
Endurmenntun Háskólans á Bifröst
Grunnnámskeið í stafrænni hönnun
Námskeiðið er alhliða grunnnámskeið í stafrænni fatahönnun og fatagerð. Þátttakendur munu skilja og geta beitt stafrænum hönnunarreglum í samhengi við faghönnun í tískuiðnaði. Þeir öðlast grunn í notkun CLO3D hugbúnaðar sem er öflugt hönnunarforrit við gerð stafrænna sniða sem saumuð eru upp sem sýndarfatnaður. Hugbúnaðurinn sem nemendur læra að beita er að gjörbylta hönnunar- og framleiðsluferlum í tískuiðnaði. Þátttakendur munu læra hvernig þeir geta yfirfært skapandi hugmyndir sínar á raunhæfar þrívíddarflíkur, sem straumlínulagar hönnunarferlið, gerir það auðveldara og skilvirkara og dregur verulega úr umhverfis spori í hönnunarferlinu.Sjá kennsluskrá hér.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja öðlast færni í að nýta helstu verkfæri CLO3d, hafa færni til að lesa upplýsingar um galla í hönnun sinni og hvernig er best að laga flíkur út frá gefnum upplýsingum.
Kennari
Björg Ingadóttir
Um Endurmenntun Háskólans á Bifröst
Endurmenntun Háskólans á Bifröst býður upp á fjölbreytt námskeið og styttri námsleiðir fyrir þau sem vilja efla þekkingu sína, þróa færni og taka forskot á framtíðina. Okkar sérstaða er öflugt fjarnám sem mætir þörfum þeirra sem eru á vinnumarkaði og vilja læra á eigin hraða.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
125.000 kr.
Skráning og greiðsla fer fram á vef Endurmenntun Háskólans á Bifröst. Þú ferð á þeirra síðu til að klára kaupin.
