Sigraðu streituna

Akademias

Sigraðu streituna

Hver er muninn á streitu, kulnun og sjúklegri streitu? Til þess að geta áttað sig á sínum eigin tilfinningum og komið í veg fyrir að maður brenni út er gott að kunna skil á þessum atriðum. Þátttakendum eru gefin verkfæri til að greina streitu og þeim kennt að nota rannsakaðar aðferðir til forvarnar og úrlausna á streitu. Greinarmunur er gerður á því hvar ábyrgð starfsmanna liggur og hvernig starfsfólk getur aukið afköst sín án þess að auka við streituna.

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi

  • þekki hugtakið streita, einkenni hennar, hvaða viðvörunarbjöllur eru farnar að klingja og birtingarmyndir hennar
  • kynnist orkustjórnun og leiðum til lausna
  • þekki mikilvægi samskiptaþáttarins ef nálgast kulnun, hvernig ber að meðhöndla hana og hvað er gott að hafa í huga þegar tekið er aftur til starfa í bataferlinu

Á námskeiðinu eru kynnt ný hugtök úr streitufræðunum og farið er í viðurkenndar aðferðir sem stuðla að streituvörnum sem auka afköst.

Fyrir hverja?

Alla þá sem sækjast eftir meiri afköstum en betra jafnvægi í senn í einkalífi og starfi.

Um Akademias

Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð fyrir atvinnurekendur

190.000 kr. + vsk.

12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.

Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.

Rafrænt
58 mín
Akademias