Rétt líkamsbeiting - á skrifstofunni og heima

Akademias

Rétt líkamsbeiting - á skrifstofunni og heima

Þetta námskeið fjallar um rétta líkamsbeitingu við tölvuvinnu, bæði í fjarvinnu heiman frá og almennt á vinnustað. Markmiðið er að þátttakendur læri að vinna á líkamsvænan hátt, draga úr líkamlegu álagi og stuðla að betri líðan og aukinni einbeitingu. Farið er yfir hvernig best sé að stilla vinnuumhverfið – þar með talið hæð á skrifborðsstól, tölvuskjá og skrifborði – til að tryggja örugga og þægilega líkamsstöðu. Einnig er fjallað um mikilvægi reglulegra hléa, hreyfingar og fjölbreytni í vinnustellingum.

Fyrir hverja?

Námskeiðið nýtist öllum sem vinna við tölvu, hvort sem er heima eða á vinnustað, og vilja bæta aðbúnað sinn og stuðla að betri heilsu til lengri tíma.

Um Akademias

Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð fyrir atvinnurekendur

190.000 kr. + vsk.

12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.

Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.

Rafrænt
58 mín
Akademias
Rétt líkamsbeiting - á skrifstofunni og heima | Mentora