
Akademias
Innhverf íhugun
Innhverf íhugun opnar dyrnar að fullum andlegum þroska. Víðtækar rannsóknir hafa sýnt að hún dregur úr streitu og kvíða sem kemur fram í auknum innri friði, sköpunarmætti, betri heilsu, árangri og hamingju.
Maharishi Mahesh Yogi færði heiminum Innhverfa íhugun fyrir 50 árum. Nú hafa um 5 milljónir manna lært tæknina. Aðferðin er einföld og huganum fullkomlega eðlileg. Hægt er að kenna börnum allt niður í fjögurra ára aldur.
Innhverf íhugun hefur algera sérstöðu. Hún er í grundvallaratriðum frábrugðin öðrum íhugunar- og slökunaraðferðum. Nýleg rannsókn á starfsemi heilans, meðan á íhugun eða hugleiðslu stendur, sýnir að flokka má íhugunaraðferðir í þrennt: einbeitingu, gjörhygli (mindfulness) og sjálfvirka reynslu af „transcendental“ vitund, en það hugtak er notað til að lýsa því sem gerist í innhverfri íhugun. Rannsóknin birtist í tímaritinu Vitund og skynjun (Consciousness and Cognition).
Innhverf íhugun er aðeins kennd frá manni til manns af sérmenntuðum kennurum. Iðkað er tvisvar á dag, í stól, með lokuð augu.
Fyrir hverja?
Innhverf íhugun er fyrir alla sem hafa áhuga á þessari einföldu hugrænu tækni. Hún er fyrir venjulegt fólk sem vill meiri lífsgæði, auka starfsorku, verða skýrari í hugsun og bæta andlega heilsu sína.
Um Akademias
Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð fyrir atvinnurekendur
190.000 kr. + vsk.
12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.
Önnur námskeið sem gætu hentað

Akademias
Hvað liggur á bakvið erfiða hegðun
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga

Akademias
Að koma sér upp úr sófanum
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
24.000 kr. fyrir einstaklinga

Akademias
Að setja fólki mörk
190.000 kr.+ vsk.
fyrir atvinnurekendur
9.000 kr. fyrir einstaklinga