Breytingaskeiðið

Akademias

Breytingaskeiðið

Það liggur fyrir öllum konum að fara á breytingaskeiðið á einhverjum tímapunkti æviskeiðsins. Á þessu námskeiði fer Hanna Lilja læknir yfir það hvað er að gerast í líkama kvenna frá kynþroskaskeiði yfir á frjósemisskeið og svo hvernig breytingaskeið kvenna getur verið einstaklingsbundið og margþætt. Mikilvægt er að gera konur meðvitaðar um eigin líkama á öllum stigum svo hægt sé að grípa inn í og aðstoða konu sem finnur fyrir einhverjum breytingum á líðan sinni. Einfaldir hlutir hjá konu geta virst ansi flóknir þegar á breytingaskeið er komið og mikilvægt að vera vakandi fyrir því sem er að gerast í líkamanum. Því fyrr því betra er að grípa inn í.

Markmið námskeiðsins er m.a. að

  • fræða og upplýsa um helstu hormón líkamans og hlutverk þeirra
  • gefa upplýsingar um breytingaskeiðið hjá konum og hvernig það hefur mismunandi áhrif á konur andlega og líkamlega
  • fá innsýn í þau úrræði sem eru í boði fyrir konur og hvernig hægt er að grípa þær fljótt með einstaklings- og heildræna nálgun í huga

Fyrir hverja?

Allar konur og aðstandendur þeirra sem vilja fræðast um mikilvægi andlegrar og líkamlegrar heilsu þegar kona nálgast breytingaskeiðið, hvað er að gerast í líkamanum og hvaða úrræði eru í boði.

Um Akademias

Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð fyrir atvinnurekendur

190.000 kr. + vsk.

12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.

Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.

Rafrænt
18 mín
Akademias