Verkleg líffærafræði

Símenntun Háskólans á Akureyri

Verkleg líffærafræði

Yfirlit

Markmið námskeiðsins er að sýna þátttakendum uppbyggingu mannslíkamans og líffæranna sem byggja hann. Stuðst er við stutta, hnitmiðaða fyrirlestra með aðstoð þrívíddarlíkans og í kjölfarið eru líffæri krufin í litlum hópum. Notast er við líffæri úr dýrum sem eru, með mjög fáum undartekningum, sláandi lík þeim sem mannslíkaminn geymir.

Námskeiðið fer fram í Háskólanum á Akureyri í stofum M201 og M202, frá kl. 10:00 til 14:00/15:00.

Hagnýtar upplýsingar

Ekki er krafist undirbúnings fyrir námskeiðið en þekking eða upprifjun á líffærafræði mannsins flýtir fyrir og gerir krufninguna skemmtilegri.

Á námskeiðinu verður til staðar allur búnaður svo sem hanskar, hnífar, svuntur o.s.frv.

Námskeiðið hentar bæði heilbrigðisstarfsfólki sem og fólki úr öðrum geirum eða námi.

Fólki með þekkingu í líffærafræði verður hópað saman svo þeir hópar geti farið í meiri smáatriði í sinni krufningu.

Notast er við þrívíddarlíkanið Complete Anatomy frá Elsevier (https://www.3d4medical.com/) en til er ókeypis þrívíddarlíkan frá Zygote Body sem er í lægri gæðum en er ansi gagnlegt (https://www.zygotebody.com/).

Líffærin á námskeiðinu eru fengin úr sláturhúsum sem færu annars flest til spillis. Námskeiðið er hannað til að taka 4 klst. en nemendur eru beðnir um að vera undirbúnir í að það teygist upp í 5 klst. þar sem stundum tekur lengri tíma en áætlað er að svala forvitni og fróðleiksþorsta í verklegri kennslu.

Efnisskrá

Kennslufyrirkomulag:

-Stuttir, hnitmiðaðir fyrirlestrar (7-15 mínútur um hvert líffærakerfi)

-Þrívíddartækni notuð til stuðnings

-Umfangsmikill verklegur hluti með beinni skoðun líffæra í litlum hópum, 3-5 aðilar í hóp

-Ratleikur spilaður til að bera kennsl á hlutana sem byggja líffærin sem sýnd voru í fyrirlestri

Krufning og skoðun:

-Þátttakendur fá að skoða og kryfja heil líffæri úr svínum, lömbum eða nautum

Hvað gerum við á námskeiðinu?

-Skoða heil líffæri með eigin augum

-Kryfja og greina uppbyggingu hvers líffæris

-Upplifa raunverulega áferð og útlit líffæra

Hvaða líffærakerfi verða skoðuð?*

-1. Hjarta og blóðrásarkerfi

-2. Barki, lungu og öndun

-3. Heili, taugakerfi og sjón

-4. Nýru, æxlunar- og þvagkerfi

-5. Meltingarkerfi og lifur

-6. Stoðkerfi, sinar, brjósk og bein

*Með fyrirvara um að nákvæmlega hvaða líffærahluta hægt verður að sýna er á endanum eftir framboði. Reynt verður að gera öllu ofangreindu góð skil.

Dagskrá

Námskeiðið verður haldið laugardaginn 24. október 2026 í Háskólanum á Akureyri, í stofum M201 og M202, frá kl. 10:00 til 14:00/15:00.

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

39.900 kr.

Laugardag 24. okt
Staðnám
4 klst
Símenntun Háskólans á Akureyri