Skattskil

Símenntun Háskólans á Akureyri

Skattskil

Yfirlit

Námskeiðið er fjórar vikur og byggist upp á fyrirlestrum, fjarfundum, verkefnum og krossaprófum til æfingar.

Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja skilja hvernig skattkerfið á Íslandi virkar, vilja læra að gera upp einstaklingsrekstur eða hvern þann sem vill auka þekkingu sína á skattkerfinu.

Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja stofna sinn eigin rekstur og/eða fyrirtæki, sem og þeim sem eru nú þegar í rekstri en vilja taka virkari þátt í fjármálahluta rekstrarins.

Hagnýtar upplýsingar

Fjarnámskeið sem inniheldur fyrirlestra, umræðufundi og verkefni. Námskeiðið hefst 1. febrúar og er í 4 vikur. Fundir með kennara eru á fimmtudögum kl. 20:00.

Fyrirkomulag fjarnáms

Kennari setur inn fyrirlestra sem þátttakendur geta hlustað á þegar þeim hentar.

Efnisskrá

Námskeiðið er fjórar vikur og byggist upp á fyrirlestrum, fjarfundum, verkefnum og krossaprófum til æfingar. Kennari setur inn fyrirlestra sem þátttakendur geta hlustað á þegar þeim hentar. Verkefni verða opin á kennslusvæðinu þar sem þátttakendur geta æft sig í þeim þáttum sem verið er að fjalla um. Einu sinni í viku hittumst við á fjarfundi þar sem hægt verður að koma með spurningar, raundæmi og farið verður yfir verkefni. Krossapróf verða opin á kennslusvæðinu þar sem þátttakendur geta æft sig og dýpkað skilininginn á efninu. Engar einkunnir eru gefnar og þátttakendur geta tekið krossaprófin eins oft og þeir vilja.

Inntökuskilyrði

Engin inntökuskilyrði eru. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á að kynnast betur hvernig rekstur fyrirtækis virkar og þeim sem hafa hug á að stofna fyrirtæki og/eða rekstur.

Dagskrá

Dagskrá

Fyrirlestrar

Fjarfundir

Verkefni og krossapróf

Vika 1

Inngangur að skattkerfinu
Skattskyldar tekjur
Tekjuskráning og bókhald

Fjarfundur 1
04.02.2027
kl. 20:00

Skattskyldar tekjur
Krossapróf 1

Vika 2

Laun og staðgreiðsla
Frádráttur í atvinnurekstri
Virðisaukaskattur

Fjarfundur 2
11.02.2027
kl. 20:00

Krossapróf 2
Frádráttarverkefni

Vika 3

Fyrningar
Ýmis rekstrarform
Barna- og vaxtabætur

Fjarfundur 3
18.02.2027
kl. 20:00

Krossapróf 3
Barnabótaverkefni

Vika 4

Framtalsskil og álagning
Kærur og frestir

Fjarfundur 4
25.02.2027
kl. 20:00

Krossapróf 4
Framtalsverkefni

Ath. Tímasetningar geta breyst.

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

31.000 kr.

1. feb 2027
Fjarnám
4 vikur
Símenntun Háskólans á Akureyri