
Símenntun Háskólans á Akureyri
Ofbeldi gegn börnum: Þekking og viðbrögð
Yfirlit
Námskeiðið veitir innsýn í hinn flókna heim ofbeldis gegn börnum og fjallar um helstu birtingarmyndir þess, afleiðingar og viðeigandi úrræði. Þátttakendur fá fræðslu um tölulegar staðreyndir, skilgreiningar og flokkun ofbeldis, ásamt því að kynnast einkennum og merkjum sem geta bent til þess að barn sé beitt ofbeldi eða búi við vanrækslu. Sérstök áhersla er lögð á að efla færni í að hlusta, ræða við börn um erfiða hluti og bregðast við á faglegan hátt.
Hagnýtar upplýsingar
Námskeiðið hentar fagfólki sem vinnur með börnum, s.s. í leik- og grunnskólum, félagsþjónustu, heilbrigðiskerfi, íþróttastarfi og tómstundastarfi, auk annarra sem vilja auka þekkingu sína á þessu mikilvæga málefni.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið fer alfarið fram í fjarkennslu í gegnum Zoom. Engar upptökur verða af námskeiðinu.
Efnisskrá
Yfirlit yfir það sem kennt er
• Staða mála og tölulegar staðreyndir.
• Flokkun og birtingarmyndir – vanræksla, líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi, heimilisofbeldi og áhættuhegðun barna.
• Einkenni og afleiðingar – áhrif ofbeldis á hegðun, þroska, nám og framtíðarheilsu barna.
• Að tala og hlusta – aðferðir til að ræða við börn um erfiða hluti og skapa traust í samkiptum.
• Barnavernd og úrræði – tilkynningarskylda og lög.
• Hagnýt verkfæri fyrir fagfólk – greining einkenna, skráning og rétt viðbrögð í starfi.
Eftir námskeiðið ættu nemendur að:
• Þekkja helstu birtingarmyndir, einkenni og afleiðingar ofbeldis og vanrækslu.
• Vita hvernig á að hlusta á og ræða við börn um erfiða hluti.
• Koma auga á afleiðingar ofbeldis til skemmri og lengri tíma.
• Vera meðvitaðir um barnavernd og tilkynningarskyldu.
• Hafa verkfæri til að geta brugðist rétt við og stuðlað að öruggu umhverfi fyrir börn.
Námskeiðið fer fram með fyrirlestrum og umræðum þátttakenda.
Dagskrá
Námskeiðið opnar 11. janúar og er efnið opið á kennsluvef námskeiðsins til 5. febrúar. Fjarfundir fara fram á zoom miðvikudagana 13., 20., 27. janúar og 3. febrúar kl. 15:00-17:00.
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
49.000 kr.