
Símenntun Háskólans á Akureyri
Meðvirkni málstofa 5 - IFS og partar
Yfirlit
Skráningu lýkur 15. janúar!
Kannastu við að einn hluti af þér vilji segja nei en annar segir já? Áttu sterka innri gagnrýnisrödd? Eða veistu hvað væri þér fyrir bestu en upplifir samt að eitthvað innra með þér standi í vegi fyrir breytingum?
Í þessari 90 mínútna málstofu kynnumst við Innra fjölskyldukerfinu (Internal Family Systems – IFS), nálgun sem byggir á þeirri hugmynd að við búum yfir ólíkum innri pörtum sem hafa hver sitt hlutverk.
Við skoðum hvernig þessir partar geta mótast í gegnum lífsreynslu og hvernig þeir reyna að vernda okkur, jafnvel þótt viðbrögð þeirra séu ekki alltaf hjálpleg í dag.
Þátttakendur kynnast Sjálfinu, stjórnendum, slökkviliðum og útlögum og læra hvernig hægt er að mæta eigin innri pörtum af forvitni og skilningi í stað þess að berjast gegn þeim.
Í gegnum verkefnavinnu og stutta, leidda æfingu fá þátttakendur tækifæri til að kortleggja eigið innra kerfi og kynnast einum parti betur.
Þú ferð heim með þitt eigið partakort og hagnýta æfingu til að halda áfram að byggja upp betri tengsl við sjálfa/n þig.
Tími: Föstudagur 22. janúar 2027, kl. 17:30–19:00
Lengd: 90 mínútur
Kennarar: Baldur Einarsson og Barbara Hafey Þórðardóttir
Byggt á: Richard C. Schwartz og IFS Institute.
Málstofan stendur sjálfstætt og ekki er nauðsynlegt að þekkja IFS eða hafa tekið þátt í fyrri málstofum.
20% afsláttur með kóðanum MEDVIRKNI ef keyptar eru fleiri en ein málstofa.
Hagnýtar upplýsingar
Meðvirkni – sex málstofur frá mynstri til breytinga
Sex sjálfstæðar 90 mínútna málstofur þar sem fræðsla, sjálfsskoðun og verkefnavinna fléttast saman.
Hver málstofa stendur sjálfstætt og hægt er að velja þær eftir áhuga og þörfum. Saman mynda þær þó heildstæða vegferð – frá því að skilja meðvirk mynstur og hvaðan þau koma yfir í að byggja upp heilbrigðari tengsl við sjálfan sig og aðra.
Málstofurnar sex
1. Skilgreining og mörk - 30. október kl. 17:30
Hvað er meðvirkni í raun og veru? Við skoðum fimm megineinkenni meðvirkni samkvæmt Pia Mellody og muninn á innri og ytri mörkum. Grunnurinn sem hinar málstofurnar byggja á.
2. Sjálfsmynd og meðvirkni - 31. október kl. 14:00
Við skoðum þrjú lög sjálfsmyndarinnar, hvernig við metum eigið virði og röddina sem tekur við þegar eitthvað gengur úrskeiðis. Markmiðið er að koma auga á það sem hefur mótað sýn okkar á okkur sjálf.
3. Hvað kom fyrir þig- 27. nóvember kl. 17:30-19:00
Við skoðum streituviðbrögðin fjögur – þar á meðal þóknun – og ólíkar birtingarmyndir vanrækslu í uppeldi. Áherslan er á að skilja hvers vegna við bregðumst við eins og við gerum í dag.
4. Tilfinningar og tengsl - 28. nóvember kl. 14:00-15:30
Hvað gerist í okkur þegar tengsl verða óörugg? Við vinnum meðal annars með hugmyndir úr tilfinningamiðaðri parameðferð, riddarana fjóra hjá Gottman og tilfinningadagbók sem þátttakendur taka með sér heim.
5. IFS og partar - 22. janúar 2027 kl. 17:30-19:00
Við kynnumst Sjálfinu, verndurum og útlögum samkvæmt IFS. Þátttakendur kortleggja eigið innra kerfi og fara í leidda æfingu þar sem þeir fá tækifæri til að kynnast einum parti betur.
6. Bati og nýtt líf - 23. janúar 2027 kl. 14:00-15:30
Hvernig lítur bati út í raun? Við skoðum þrjú stig bata samkvæmt Judith Herman, leiðir til að sjá og mæla eigin framfarir og þátttakendur móta sína eigin 30, 60 og 90 daga áætlun.
Hverri málstofu fylgir vinnubók og vinnublöð til að vinna með á staðnum og halda áfram með heima. Heimildir og ítarefni fylgja einnig fyrir þau sem vilja kafa dýpra.
Þú getur komið á eina málstofu eða fylgt allri vegferðinni. Hver málstofa stendur ein og sér – en saman segja þær stærri sögu: frá því að þekkja mynstrið til þess að skapa eitthvað nýtt.
Efnisskrá
Þetta á við þig ef þú kannast við þetta:
• Einn hluti af þér vill segja nei og annar segir já áður en þú nærð að stoppa hann.
• Innri gagnrýnandinn er háværari en nokkur annar sem þú þekkir.
• Þú veist hvað væri gott fyrir þig, en eitthvað í þér kemur í veg fyrir að þú gerir það.
• Þú ert róleg eða rólegur og skynsöm eða skynsamur, þangað til eitthvað smávægilegt hendir þér út af laginu.
• Þú hefur reynt að losna við „slæmu“ hliðarnar á þér, og þær koma alltaf aftur.
• Þú upplifir stundum að þú sért mörg á sama tíma.
Lýsingin
Það er eðlilegt að vera fleira en eitt. Við segjum það sjálf: „hluti af mér vill fara, en annar hluti vill vera.“
Innri fjölskyldukerfi (IFS) tekur þetta alvarlega. Hugurinn er gerður úr pörtum, eins og fjölskylda, og enginn þeirra er slæmur. Sá sem gagnrýnir þig er að reyna að vernda þig frá höfnun. Sá sem segir alltaf já er að reyna að halda friðinn. Þeir lærðu hlutverkin sín þegar þú varst lítil eða lítill, og þeir halda þeim enn þótt þú sért orðin fullorðin manneskja.
Undir öllum pörtunum er Sjálfið: rólegt, forvitið og hlýtt. Það er aldrei brotið. Það er bara stundum hulið undir pörtum sem hafa unnið of mikið of lengi.
Í þessari málstofu kynnumst við pörtunum sem meðvirkni byggir á: stjórnendunum sem passa að allt sé í lagi, slökkviliðunum sem koma þegar sársaukinn verður of mikill, og útlögunum sem bera það sem var of erfitt að finna.
Við skoðum hvað Sjálfið er og hvernig það er að mæta pörtunum af forvitni í stað þess að berjast við þá. Þú sérð af hverju „hættu þessu bara“ virkar aldrei, og hvað virkar í staðinn.
Svo gerum við þetta saman. Í stuttri, leiddri æfingu kynnist þú einum parti í þér, spyrð hann hvað hann er að reyna að gera fyrir þig, og þakkar honum fyrir.
Þú ferð heim með þitt eigið partakort og æfingu til að halda samtalinu áfram.
Dagskrá
Málstofan fer fram föstudaginn 22. janúar frá kl. 17:30-19:00 í Háskólanum á Akureyri.
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
15.000 kr.