
Símenntun Háskólans á Akureyri
Meðvirkni málstofa 4 - Tilfinningar og tengsl
Yfirlit
Skráningu lýkur 20. nóvember!
Áttu erfitt með að segja frá eigin tilfinningum og þörfum? Finnst þér sömu ágreiningsmálin koma aftur og aftur upp í samböndum? Eða þráir þú nánd en átt erfitt með að finna öryggi í tengslum við aðra?
Í þessari 90 mínútna málstofu skoðum við hvernig tengslamynstur mótast og hvaða áhrif þau geta haft á samskipti okkar, tilfinningar og náin sambönd.
Við kynnumst ólíkum tengslamynstrum, meðal annars kvíðatengslum og forðunartengslum, og skoðum hvernig þau geta haft áhrif á viðbrögð okkar þegar við upplifum óöryggi eða ágreining.
Einnig förum við yfir þrjár grundvallarspurningar úr tilfinningamiðaðri parameðferð og riddarana fjóra samkvæmt Gottman – gagnrýni, varnarviðbrögð, fyrirlitningu og að múra sig af – ásamt leiðum til að bæta samskipti.
Með fræðslu og hagnýtum verkefnum æfa þátttakendur sig í að þekkja eigin tilfinningar, tjá þarfir sínar og eiga uppbyggilegri samskipti.
Þú ferð heim með tilfinningadagbók og einföld verkfæri sem geta hjálpað þér að byggja upp heilbrigðari og öruggari tengsl.
Tími: Laugardagur 28. nóvember 2026, kl. 14:00–15:30
Lengd: 90 mínútur
Kennarar: Baldur Einarsson og Barbara Hafey Þórðardóttir
Byggt á: Sue Johnson, John Gottman og John Bowlby.
Málstofan stendur sjálfstætt og ekki er nauðsynlegt að hafa tekið þátt í fyrri málstofum.
20% afsláttur með kóðanum MEDVIRKNI ef keyptar eru fleiri en ein málstofa.
Hagnýtar upplýsingar
Meðvirkni – sex málstofur frá mynstri til breytinga
Sex sjálfstæðar 90 mínútna málstofur þar sem fræðsla, sjálfsskoðun og verkefnavinna fléttast saman.
Hver málstofa stendur sjálfstætt og hægt er að velja þær eftir áhuga og þörfum. Saman mynda þær þó heildstæða vegferð – frá því að skilja meðvirk mynstur og hvaðan þau koma yfir í að byggja upp heilbrigðari tengsl við sjálfan sig og aðra.
Málstofurnar sex
1. Skilgreining og mörk - 30. október kl. 17:30
Hvað er meðvirkni í raun og veru? Við skoðum fimm megineinkenni meðvirkni samkvæmt Pia Mellody og muninn á innri og ytri mörkum. Grunnurinn sem hinar málstofurnar byggja á.
2. Sjálfsmynd og meðvirkni - 31. október kl. 14:00
Við skoðum þrjú lög sjálfsmyndarinnar, hvernig við metum eigið virði og röddina sem tekur við þegar eitthvað gengur úrskeiðis. Markmiðið er að koma auga á það sem hefur mótað sýn okkar á okkur sjálf.
3. Hvað kom fyrir þig- 27. nóvember kl. 17:30-19:00
Við skoðum streituviðbrögðin fjögur – þar á meðal þóknun – og ólíkar birtingarmyndir vanrækslu í uppeldi. Áherslan er á að skilja hvers vegna við bregðumst við eins og við gerum í dag.
4. Tilfinningar og tengsl - 28. nóvember kl. 14:00-15:30
Hvað gerist í okkur þegar tengsl verða óörugg? Við vinnum meðal annars með hugmyndir úr tilfinningamiðaðri parameðferð, riddarana fjóra hjá Gottman og tilfinningadagbók sem þátttakendur taka með sér heim.
5. IFS og partar - 22. janúar 2027 kl. 17:30-19:00
Við kynnumst Sjálfinu, verndurum og útlögum samkvæmt IFS. Þátttakendur kortleggja eigið innra kerfi og fara í leidda æfingu þar sem þeir fá tækifæri til að kynnast einum parti betur.
6. Bati og nýtt líf - 23. janúar 2027 kl. 14:00-15:30
Hvernig lítur bati út í raun? Við skoðum þrjú stig bata samkvæmt Judith Herman, leiðir til að sjá og mæla eigin framfarir og þátttakendur móta sína eigin 30, 60 og 90 daga áætlun.
Hverri málstofu fylgir vinnubók og vinnublöð til að vinna með á staðnum og halda áfram með heima. Heimildir og ítarefni fylgja einnig fyrir þau sem vilja kafa dýpra.
Þú getur komið á eina málstofu eða fylgt allri vegferðinni. Hver málstofa stendur ein og sér – en saman segja þær stærri sögu: frá því að þekkja mynstrið til þess að skapa eitthvað nýtt.
Efnisskrá
Þetta á við þig ef þú kannast við þetta:
• Þú veist nákvæmlega hvernig makanum líður, en ef einhver spyr hvernig þér líður kemur „bara fínt“.
• Þú gleypir það sem særir þig til að halda friðinn, og svo springur það út á vitlausum stað.
• Rifrildi heima fara alltaf sömu leiðina, sama um hvað þau byrja.
• Þú óttast að ef þú segir hvað þú þarft, þá verði það of mikið.
• Þú ert annaðhvort að elta eða að draga þig í hlé, og veist ekki hvernig á að hætta.
• Þú þráir nánd en upplifir þig samt eina eða einan í sambandinu.
Lýsingin
Fólk sem glímir við meðvirkni er oft næmasta fólkið í herberginu. Það tekur eftir minnstu breytingu á svip makans, finnur spennuna áður en hún kemur upp á yfirborðið og veit hvað þarf að segja til að róa hana.
En eigin tilfinningar fá ekki sama rými. Þær eru settar til hliðar, gerðar minni, geymdar þangað til síðar. Og síðar kemur aldrei.
Tilfinningar eru ekki vandamál sem þarf að leysa. Þær eru vegvísir. Þær segja okkur hvað við þurfum og hvað skiptir okkur máli. Þegar við hættum að heyra í þeim missum við líka sambandið við þau sem við elskum, því nánd verður ekki til nema báðir aðilar séu til staðar.
Í þessari málstofu skoðum við tengslamynstrin sem við lærðum sem börn: kvíðatengsl, forðunartengsl og það þegar þörfin og hræðslan koma frá sama stað. Þú sérð hvernig þau birtast í sambandinu þínu í dag, og af hverju sömu rifrildin koma aftur og aftur.
Dagskrá
Málstofan fer fram laugardaginn 28. nóvember frá kl. 14:00-15:30 í Háskólanum á Akureyri.
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
15.000 kr.