
Símenntun Háskólans á Akureyri
Meðvirkni málstofa 3 - Hvað kom fyrir þig?
Yfirlit
Skráningu lýkur 20. nóvember.
Finnur þú oft fyrir líðan annarra áður en nokkur segir orð? Segir þú já áður en þú nærð að hugsa þig um? Eða upplifir þú að líkaminn fari í viðbragðsstöðu þótt engin augljós hætta sé til staðar?
Í þessari 90 mínútna málstofu skoðum við hvernig reynsla úr uppvexti, áföll og langvarandi streita geta mótað hegðunarmynstur okkar og viðbrögð í dag. Við beinum sjónum að því hvernig meðvirkni getur þróast sem leið til að skapa öryggi og takast á við erfiðar aðstæður.
Við kynnumst streituviðbrögðunum fjórum – að berjast, flýja, frjósa og þóknast – og skoðum hvernig þau geta birst í samskiptum og tengslum á fullorðinsárum. Einnig ræðum við áhrif vanrækslu í uppeldi, skömm og tengslin milli tilfinninga og líkamlegra viðbragða.
Þátttakendur fá tækifæri til að skoða eigin viðbrögð í gegnum verkefnavinnu og stutta, leidda æfingu þar sem áhersla er lögð á öryggi og eigin mörk.
Markmiðið er að öðlast meiri skilning á eigin hegðun og læra að mæta sjálfum sér af meiri mildi í stað sjálfsgagnrýni.
Tími: Föstudagur 27. nóvember 2026, kl. 17:30–19:00
Lengd: 90 mínútur
Kennarar: Baldur Einarsson og Barbara Hafey Þórðardóttir
Byggt á: Bessel van der Kolk, Pete Walker, Pia Mellody, John Bradshaw, Gabor Maté og Peter Levine.
Málstofan stendur sjálfstætt og ekki er nauðsynlegt að hafa tekið þátt í fyrri málstofum.
20% afsláttur með kóðanum MEDVIRKNI ef keyptar eru fleiri en ein málstofa.
Hagnýtar upplýsingar
Meðvirkni – sex málstofur frá mynstri til breytinga
Sex sjálfstæðar 90 mínútna málstofur þar sem fræðsla, sjálfsskoðun og verkefnavinna fléttast saman.
Hver málstofa stendur sjálfstætt og hægt er að velja þær eftir áhuga og þörfum. Saman mynda þær þó heildstæða vegferð – frá því að skilja meðvirk mynstur og hvaðan þau koma yfir í að byggja upp heilbrigðari tengsl við sjálfan sig og aðra.
Málstofurnar sex
1. Skilgreining og mörk - 30. október kl. 17:30
Hvað er meðvirkni í raun og veru? Við skoðum fimm megineinkenni meðvirkni samkvæmt Pia Mellody og muninn á innri og ytri mörkum. Grunnurinn sem hinar málstofurnar byggja á.
2. Sjálfsmynd og meðvirkni - 31. október kl. 14:00
Við skoðum þrjú lög sjálfsmyndarinnar, hvernig við metum eigið virði og röddina sem tekur við þegar eitthvað gengur úrskeiðis. Markmiðið er að koma auga á það sem hefur mótað sýn okkar á okkur sjálf.
3. Hvað kom fyrir þig- 27. nóvember kl. 17:30-19:00
Við skoðum streituviðbrögðin fjögur – þar á meðal þóknun – og ólíkar birtingarmyndir vanrækslu í uppeldi. Áherslan er á að skilja hvers vegna við bregðumst við eins og við gerum í dag.
4. Tilfinningar og tengsl - 28. nóvember kl. 14:00-15:30
Hvað gerist í okkur þegar tengsl verða óörugg? Við vinnum meðal annars með hugmyndir úr tilfinningamiðaðri parameðferð, riddarana fjóra hjá Gottman og tilfinningadagbók sem þátttakendur taka með sér heim.
5. IFS og partar - 22. janúar 2027 kl. 17:30-19:00
Við kynnumst Sjálfinu, verndurum og útlögum samkvæmt IFS. Þátttakendur kortleggja eigið innra kerfi og fara í leidda æfingu þar sem þeir fá tækifæri til að kynnast einum parti betur.
6. Bati og nýtt líf - 23. janúar 2027 kl. 14:00-15:30
Hvernig lítur bati út í raun? Við skoðum þrjú stig bata samkvæmt Judith Herman, leiðir til að sjá og mæla eigin framfarir og þátttakendur móta sína eigin 30, 60 og 90 daga áætlun.
Hverri málstofu fylgir vinnubók og vinnublöð til að vinna með á staðnum og halda áfram með heima. Heimildir og ítarefni fylgja einnig fyrir þau sem vilja kafa dýpra.
Þú getur komið á eina málstofu eða fylgt allri vegferðinni. Hver málstofa stendur ein og sér – en saman segja þær stærri sögu: frá því að þekkja mynstrið til þess að skapa eitthvað nýtt.
Efnisskrá
Þetta á við þig ef þú kannast við þetta:
• Þú finnur á þér hvernig öðrum líður áður en nokkur segir orð.
• Þú segir já áður en þú hefur hugsað þig um, og sérð eftir því seinna.
• Þegar einhver hækkar róminn verður þú lítil eða lítill, sama hvað þú ert gömul eða gamall.
• Þú veist að það er ekkert að gerast, en líkaminn er samt í viðbragðsstöðu.
• Þér líður best þegar öllum öðrum líður vel.
• Þú hefur spurt þig: hvað er eiginlega að mér?
Lýsingin
Þú lærðir að lesa herbergið áður en þú lærðir að lesa.
Þú vissir á fótatakinu hvernig kvöldið yrði. Þú heyrðir á því hvernig hurðinni var lokað hvort það væri óhætt að tala. Þú lærðir að ef þú gerðir allt rétt, létir lítið fyrir þér fara og hjálpaðir til, þá yrði allt í lagi.
Enginn kallaði þetta áfall. Það var bara lífið. En barnið sem stóð í dyragættinni og las andlitin lifði það af með því að verða næmt á alla aðra og hætta að heyra í sjálfu sér. Það barn er enn þarna. Það er barnið sem segir já í dag þegar þig langar að segja nei.
Meðvirkni er ekki persónugalli. Hún er snjallt svar barns við aðstæðum sem það gat ekki breytt. Þess vegna spyrjum við ekki hvað er að þér. Við spyrjum hvað kom fyrir þig.
Í þessari málstofu byrjum við á líkamanum. Áfall er ekki bara minning, það er reynsla sem sest að í taugakerfinu. Við skoðum muninn á einu áfalli og langvarandi álagi í uppvexti, sem er oftast það sem liggur undir meðvirkni.
Svo tökum við viðbrögðin fjögur við ógn: að berjast, flýja, frjósa eða þóknast. Flest okkar sem glímum við meðvirkni lærðum það fjórða. Þóknunin varð leiðin til að lifa af, og hún fylgdi okkur inn í fullorðinsárin.
Við förum yfir rætur hennar í uppeldi: þarfirnar sem var ekki svarað, og skömmina sem segir „það er eitthvað að mér“ en ekki „ég gerði eitthvað rangt“.
Og við endum þar sem batinn byrjar, í líkamanum. Þú gerir stutta, leidda æfingu sem hjálpar þér að taka eftir hvar gamla viðbragðið býr í þér í dag. Rólega, á þínum hraða, og þú ræður alltaf hvað þú tekur þátt í.
Dagskrá
Málstofan fer fram föstudaginn 27. nóvember 2026, kl. 17:30–19:00 í Háskólanum á Akureyri.
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
15.000 kr.