Meðvirkni málstofa 2 - Sjálfsmynd og meðvirkni

Símenntun Háskólans á Akureyri

Meðvirkni málstofa 2 - Sjálfsmynd og meðvirkni

Yfirlit

Málstofa 2 · Sjálfsmynd og meðvirkni

Finnur þú fyrir sektarkennd þegar þú setur mörk? Þarftu staðfestingu annarra til að vita hvort þú hafir staðið þig? Er röddin sem þú notar við sjálfa/n þig mun harðari en sú sem þú myndir nota við góðan vin?

Í þessari 90 mínútna málstofu skoðum við hvernig sjálfsmynd okkar verður til og hvernig meðvirkni getur haft áhrif á það hvernig við sjáum okkur sjálf, metum eigið virði og leitum staðfestingar hjá öðrum.

Við skoðum þrjú lög sjálfsmyndarinnar – kjarnann, hlutverkin sem við gegnum og sjálfsmatið – og hvernig samanburður og þörfin fyrir utanaðkomandi staðfestingu geta orðið til þess að við missum tengslin við eigin þarfir og raunveruleika.

Þátttakendur fá kvarða til að skoða eigin sjálfsmynd og vinna með hagnýtar æfingar til að styrkja hana. Að lokum kynnumst við sjálfsmildi og hvernig hægt er að þjálfa okkur í að tala til okkar sjálfra af sömu mildi og við myndum sýna góðum vini.

Þú ferð heim með útfylltan sjálfsmyndarkvarða, æfinguna Sjálfsspegilinn og einfalda fimm mínútna æfingu til að vinna með næstu sjö daga.

Lengd: 90 mínútur
Kennarar: Baldur Einarsson og Barbara Hafey Þórðardóttir
Byggt á: Aaron Beck, Carl Rogers, Pia Mellody og Kristin Neff

Málstofan stendur sjálfstætt og ekki er nauðsynlegt að hafa tekið þátt í fyrstu málstofunni eða skrá sig í framhaldið.

20% afsláttur með kóðanum MEDVIRKNI ef keyptar eru fleiri en ein málstofa.

Hér eru upplýsingar um málstofu 1, Skilgreining og mörk.

Hagnýtar upplýsingar

Meðvirkni – sex málstofur frá mynstri til breytinga

Sex sjálfstæðar 90 mínútna málstofur þar sem fræðsla, sjálfsskoðun og verkefnavinna fléttast saman.

Hver málstofa stendur sjálfstætt og hægt er að velja þær eftir áhuga og þörfum. Saman mynda þær þó heildstæða vegferð – frá því að skilja meðvirk mynstur og hvaðan þau koma yfir í að byggja upp heilbrigðari tengsl við sjálfan sig og aðra.

Málstofurnar sex

1. Skilgreining og mörk - 30. október kl. 17:30
Hvað er meðvirkni í raun og veru? Við skoðum fimm megineinkenni meðvirkni samkvæmt Pia Mellody og muninn á innri og ytri mörkum. Grunnurinn sem hinar málstofurnar byggja á.

2. Sjálfsmynd og meðvirkni - 31. október kl. 14:00
Við skoðum þrjú lög sjálfsmyndarinnar, hvernig við metum eigið virði og röddina sem tekur við þegar eitthvað gengur úrskeiðis. Markmiðið er að koma auga á það sem hefur mótað sýn okkar á okkur sjálf.

3. Áföll sem grunnur meðvirkni - 26. nóvember kl. 17:30
Við skoðum streituviðbrögðin fjögur – þar á meðal þóknun – og ólíkar birtingarmyndir vanrækslu í uppeldi. Áherslan er á að skilja hvers vegna við bregðumst við eins og við gerum í dag.

4. Tilfinningar og tengsl - 27. nóvember kl. 14:00
Hvað gerist í okkur þegar tengsl verða óörugg? Við vinnum meðal annars með hugmyndir úr tilfinningamiðaðri parameðferð, riddarana fjóra hjá Gottman og tilfinningadagbók sem þátttakendur taka með sér heim.

5. Innra fjölskyldukerfið – kynnstu pörtunum þínum - 21. janúar 2027 kl. 17:30
Við kynnumst Sjálfinu, verndurum og útlögum samkvæmt IFS. Þátttakendur kortleggja eigið innra kerfi og fara í leidda æfingu þar sem þeir fá tækifæri til að kynnast einum parti betur.

6. Bati og nýtt líf - 22. janúar 2027 kl. 14:00
Hvernig lítur bati út í raun? Við skoðum þrjú stig bata samkvæmt Judith Herman, leiðir til að sjá og mæla eigin framfarir og þátttakendur móta sína eigin 30, 60 og 90 daga áætlun.

Hverri málstofu fylgir vinnubók og vinnublöð til að vinna með á staðnum og halda áfram með heima. Heimildir og ítarefni fylgja einnig fyrir þau sem vilja kafa dýpra.

Þú getur komið á eina málstofu eða fylgt allri vegferðinni. Hver málstofa stendur ein og sér – en saman segja þær stærri sögu: frá því að þekkja mynstrið til þess að skapa eitthvað nýtt.

Efnisskrá

Þetta á við þig ef þú kannast við þetta:

• Þú finnur til sektarkenndar í hvert sinn sem þú setur mörk.

• Þú veist ekki hvort þú stóðst þig fyrr en einhver annar segir það.

• Þegar eitthvað fer úrskeiðis leitarðu fyrst að sök hjá sjálfri eða sjálfum þér.

• Þú átt erfitt með að taka við hrósi.

• Þú veist ekki hvað þig langar í fyrr en þú veist hvað hinir vilja.

• Þú talar harðar til sjálfrar eða sjálfs þín en þú myndir nokkurn tíma tala til vinar.

Lýsingin
Ef einhver spyr hvað þú ert góð í þá geturðu talið það upp. Starfið, verkefnin, það sem þú kemur í verk.
En ef sami maður spyr hvað þér þykir vænt um hjá þér, þá kemur þögn.
Það er ekki hógværð. Það er að hafa byggt sjálfsmynd sína á því sem þú gerir fyrir aðra, og hafa svo engan grunn eftir þegar enginn þarf neitt.
Sjálfsmyndin er lærð. Hún varð til úr því sem var sagt við þig, því sem var ekki sagt, og því sem þú dróst sjálf af því. Og af því að hún er lærð má byggja hana upp aftur.
Í þessari málstofu skoðum við sjálfsmyndina í þremur lögum: kjarnann, þar sem setningin „ég er …“ býr, hlutverkin sem þú gegnir, og sjálfsmatið, sem er hversu vel þér finnst þú mæta eigin kröfum. Meðvirkni skekkir öll þrjú, og hún gerir það hljóðlega.
Þú færð kvarða til að meta hvar grunnurinn þinn stendur í dag. Hann er ekki greining og ekki dómur, hann er innsæisverkfæri, og hann segir þér hvar þú stendur núna en ekki hver þú ert.
Svo tökum við það sem heldur mynstrinu gangandi: samanburðinn við aðra og þörfina fyrir staðfestingu utan frá. Þegar sjálfsmatið er háð viðbrögðum annarra missir maður þráðinn að eigin raunveruleika.
Og við endum á því sem virkar á móti, sjálfsmildinni eins og Kristin Neff setur hana fram. Að tala til sín eins og maður talar til vinar er ekki dekur. Það er færni og hún er þjálfanleg.
Þú ferð heim með kvarðann útfylltan, æfingu sem heitir sjálfsspegillinn, og eina litla æfingu sem tekur fimm mínútur á dag í sjö daga.

Dagskrá

Málstofan fer fram laugardaginn 31. október frá kl. 14:00-15:30 í Háskólanum á Akureyri.

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

15.000 kr.

31. okt 2026
Staðnám
1,5 klst
Símenntun Háskólans á Akureyri