Meðvirkni málstofa 1 - Skilgreining og mörk

Símenntun Háskólans á Akureyri

Meðvirkni málstofa 1 - Skilgreining og mörk

Yfirlit

Málstofa 1 · Skilgreining og mörk

Segir þú stundum já þegar þú meinar nei? Veistu betur hvað aðrir þurfa en hvað þú þarft sjálf/ur? Finnst þér þú bera ábyrgð á líðan annarra eða vera manneskjan sem þarf alltaf að halda öllu saman?

Í þessari 90 mínútna málstofu skoðum við hvað meðvirkni er, hvernig hún getur orðið að lærðu hegðunarmynstri og fimm einkenni hennar. Við skoðum muninn á sektarkennd og skömm og hvernig hvort tveggja getur haft áhrif á sjálfsmynd okkar, hegðun og samskipti.

Sérstök áhersla er lögð á mörk – hvað þau eru, muninn á innri og ytri mörkum og þrjú skref í því að setja þau: að þekkja mörkin sín, setja þau og halda þeim.

Málstofan blandar saman fræðslu, umræðum og verkefnavinnu og þátttakendur fara heim með hagnýtar æfingar sem hægt er að byrja að nota strax.

Lengd: 90 mínútur
Kennarar: Baldur Einarsson og Barbara Hafey Þórðardóttir
Byggt á: Pia Mellody, John Bradshaw, Pete Walker og Kristin Neff

Málstofan stendur sjálfstætt og ekki er nauðsynlegt að taka þátt í öðrum málstofum raðarinnar.

20% afsláttur með kóðanum MEDVIRKNI ef keyptar eru fleiri en ein málstofa.

Hér eru upplýsingar um málstofu 2, Sjálfsmynd og meðvirkni.

Hagnýtar upplýsingar

Meðvirkni – sex málstofur frá mynstri til breytinga

Sex sjálfstæðar 90 mínútna málstofur þar sem fræðsla, sjálfsskoðun og verkefnavinna fléttast saman.

Hver málstofa stendur sjálfstætt og hægt er að velja þær eftir áhuga og þörfum. Saman mynda þær þó heildstæða vegferð – frá því að skilja meðvirk mynstur og hvaðan þau koma yfir í að byggja upp heilbrigðari tengsl við sjálfan sig og aðra.

Málstofurnar sex

1. Skilgreining og mörk - 30. október kl. 17:30
Hvað er meðvirkni í raun og veru? Við skoðum fimm megineinkenni meðvirkni samkvæmt Pia Mellody og muninn á innri og ytri mörkum. Grunnurinn sem hinar málstofurnar byggja á.

2. Sjálfsmynd og meðvirkni - 31. október kl. 14:00
Við skoðum þrjú lög sjálfsmyndarinnar, hvernig við metum eigið virði og röddina sem tekur við þegar eitthvað gengur úrskeiðis. Markmiðið er að koma auga á það sem hefur mótað sýn okkar á okkur sjálf.

3. Áföll sem grunnur meðvirkni - 26. nóvember kl. 17:30
Við skoðum streituviðbrögðin fjögur – þar á meðal þóknun – og ólíkar birtingarmyndir vanrækslu í uppeldi. Áherslan er á að skilja hvers vegna við bregðumst við eins og við gerum í dag.

4. Tilfinningar og tengsl - 27. nóvember kl. 14:00
Hvað gerist í okkur þegar tengsl verða óörugg? Við vinnum meðal annars með hugmyndir úr tilfinningamiðaðri parameðferð, riddarana fjóra hjá Gottman og tilfinningadagbók sem þátttakendur taka með sér heim.

5. Innra fjölskyldukerfið – kynnstu pörtunum þínum - 21. janúar 2027 kl. 17:30
Við kynnumst Sjálfinu, verndurum og útlögum samkvæmt IFS. Þátttakendur kortleggja eigið innra kerfi og fara í leidda æfingu þar sem þeir fá tækifæri til að kynnast einum parti betur.

6. Bati og nýtt líf - 22. janúar 2027 kl. 14:00
Hvernig lítur bati út í raun? Við skoðum þrjú stig bata samkvæmt Judith Herman, leiðir til að sjá og mæla eigin framfarir og þátttakendur móta sína eigin 30, 60 og 90 daga áætlun.

Hverri málstofu fylgir vinnubók og vinnublöð til að vinna með á staðnum og halda áfram með heima. Heimildir og ítarefni fylgja einnig fyrir þau sem vilja kafa dýpra.

Þú getur komið á eina málstofu eða fylgt allri vegferðinni. Hver málstofa stendur ein og sér – en saman segja þær stærri sögu: frá því að þekkja mynstrið til þess að skapa eitthvað nýtt.

Efnisskrá

Málstofan gæti átt við þig ef þú kannast við þetta:

• Þú segir já þegar þú meinar nei, og finnur það í maganum á eftir.

• Þú veist hvað allir aðrir í herberginu þurfa, en ekki hvað þú þarft sjálf eða sjálfur.

• Þú biðst afsökunar á hlutum sem voru ekki þér að kenna.

• Þegar einhverjum líður illa finnst þér það vera þitt verk að laga það.

• Þú átt erfitt með að þiggja, hvort sem það er hjálp eða hrós.

• Þú ert orðin þreytt á að vera sterka manneskjan.

Lýsingin
Þú tekur eftir því þegar öðrum líður illa, löngu áður en þau segja það.
Þú áttar þig á hvað þarf að gera og þú gerir það, því það er auðveldara en að horfa upp á einhvern eiga erfitt. Þú lest herbergið áður en þú sest niður í því.
Og einhvern tímann á leiðinni hættirðu að vita hvað þú sjálf eða sjálfur vildir.
Þetta er ekki galli í þér. Þetta er lært hegðunarmynstur, og það byrjaði einhvers staðar þar sem það var skynsamlegt. Barn sem þarf að lesa í umhverfið og tilfinningar foreldra sinna, það lærir að passa sig.
Vandinn er að mynstrið situr eftir löngu eftir að það hætti að vera nauðsynlegt.
Í þessari málstofu skoðum við hvað meðvirkni er í raun og veru og fimm einkenni hennar, hvaðan hún kemur, og muninn á sektarkennd og skömm. Sektarkenndin segir: ég gerði mistök. Skömmin segir: ég er mistök. Sá munur breytir öllu, því sá sem lifir í skömm reynir að laga sjálfan sig með því að þjóna öðrum, og það virkar aldrei. Svo förum við í mörkin. Hvað þau eru, innri og ytri, og þrjú skref í því að setja þau: að þekkja þau, að setja þau og að halda þeim.
Þú ferð heim með þrjár æfingar sem þú getur notað strax, þar á meðal eina sem tekur fimm mínútur og snýst um að segja eitt nei.

Dagskrá

Málstofan fer fram föstudaginn 30. október frá kl. 17:30-19:00 í Háskólanum á Akureyri.

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

15.000 kr.

30. okt 2026
Staðnám
1,5 klst
Símenntun Háskólans á Akureyri
Meðvirkni málstofa 1 - Skilgreining og mörk | Mentora