Lota 5 - Fyrirtækið í nútíð og framtíð

Símenntun Háskólans á Akureyri

Lota 5 - Fyrirtækið í nútíð og framtíð

Yfirlit

Sjónum beint að fyrirtækinu í nær- og fjærumhverfi sínu, eigendum, viðskiptavinum, keppinautum, birgjum, stofnunum og stjórnvöldum. Fjallað er um þessa þætti í ljósi stefnu skipulagseiningar, t.d. umhverfis- og samfélagsstefnu og með tilliti til þeirra breytinga sem eru í vændum vegna fjórðu iðnbyltingarinnar.

Lota 5 hefst 14. mars 2027 og lýkur 23. maí 2027

Fyrirkomulag fjarnáms

Allir fyrirlestrar eru aðgengilegir á netinu. Nemendur hittast einu sinni í viku, utan vinnutíma með kennara í gegnum samskiptaforritið Zoom og miðla af reynslu sinni af viðfangsefni vikunnar til samnemenda sinna.

Verkefni eru unnin út frá þínum vinnustað og þínum raunveruleika, til þess að hámarka hagnýtingu viðfangsefna hverrar viku.

Dagskrá

· Númer áfanga · Heiti áfanga · Kennari / kennarar
· 5.1 · Fyrirtækið í umhverfi sínu · Freydís Heba Konráðsdóttir
· 5.2 · Stjórnun breytinga · Gylfi Dalman Aðalsteinsson
· 5.3 · Markaður, viðskiptavinir og keppinautar · Edda Konráðsdóttir
· 5.4 · Stjórnarhættir fyrirtækja · Agla Eir Vilhjálmsdóttir
· 5.5 · Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja · Kjartan Sigurðsson
· 5.6 · Fyrirtækið og stjórnvöld · Halla M. Sveinbjörnsdóttir
· 5.7 · Fyrirtækið og framtíðin · Steinunn Ketilsdóttir
· 5.8 · Nýsköpun · Símenntun HA

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

210.000 kr.

14. mar 2027
Fjarnám
2 mánuðir
Símenntun Háskólans á Akureyri