Lota 3 - Fyrirtækið - Skipulag

Símenntun Háskólans á Akureyri

Lota 3 - Fyrirtækið - Skipulag

Yfirlit

Fjallað um innra skipulag fyrirtækja sem stjórnandi/millistjórnandi þarf að hafa þekkingu á og hæfni til að takast á við hverju sinni, s.s stjórnkerfisskipulag og ákvarðanatöku á þeim vettvangi, formlegt starfsmannahald, gæðakerfi, öryggismál á vinnustað og viðhald tækja, einkum með tilliti til öryggis og framleiðni.

Efnisskrá

· 3.1 · Uppbygging fyrirtækis, stjórnkerfi og menning · Smári S. Sigurðsson · 29.8.2027 · 5.9.2027
· 3.2 · Innlegg millistjórnenda í mótun og framkvæmd stefnu · Smári S. Sigurðsson · 5.9.2027 · 12.9.2027
· 3.3 · Stefnuvinna og samkeppnishæfni · Stefán Sigurðsson · 12.9.2027 · 26.9.2027
· 3.4 · Launastefna og hvatakerfi · Smári S. Sigurðsson · 26.9.2027 · 3.10.2027
· 3.5 · Virðiskeðja og ferlagreining · Davíð Örn Halldórsson · 3.10.2027 · 10.10.2027
· 3.6 · Straumlínustjórnun · Smári S. Sigurðsson · 10.10.2027 · 17.10.2027
· 3.7 · Alhliða framleiðnistýrt viðhald, TPM. Skipulag og viðhald starfsstöðva · Smári S. Sigurðsson · 17.10.2027 · 24.10.2027
· 3.8 · Verkefnastjórnun · Eðvald Möller · 24.10.2027 · 31.10.2027
· 3.9 · Áhættumat og öryggismál · Arnheiður Eyþórsdóttir · 31.10.2027 · 7.11.2027
· 3.10 · Uppsetning, virkni og uppfærsla gæðakerfa · Davíð Örn Halldórsson · 7.11.2027 · 14.11.2027

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

210.000 kr.

29. ágú 2027
3 mánuðir
Símenntun Háskólans á Akureyri