Lota 1 - Ég stjórnandinn

Símenntun Háskólans á Akureyri

Lota 1 - Ég stjórnandinn

Yfirlit

Verð fyrir lotu er 210.000 kr. með snemmskráningarafslætti. Hægt er að greiða með kreditkorti eða bankakröfu.

Fjallar um einstaklinginn í þeirri stöðu sem hann gegnir; „hvers vegna er ég hér", „hversu hæfan tel ég mig vera og hvað þarf ég til að auka hæfni mína?" og „Hver er afstaða mín til fyrirtækis, yfirmanna, samstarfsmanna og undirmanna?"
Farið er í hvernig þú getur bætt þig sem stjórnanda gagnvart starfsfólki þínu og/eða yfirmönnum.

Með nýjum áherslum í náminu er einnig skoðað hvernig stjórnendur geta nýtt gervigreind sem tæki til að efla eigið starf, bæta ákvarðanatöku og auka áhrif í starfi

Lota 1 snýr að þér sem stjórnanda, hvernig þú getur unnið með þína hæfileika og hvernig þú getur bætt þína veikleika.

Fyrirkomulag fjarnáms

Allir fyrirlestrar eru aðgengilegir á netinu. Nemendur hittast einu sinni í viku, utan vinnutíma með kennara í gegnum samskiptaforritið Zoom og miðla af reynslu sinni af viðfangsefni vikunnar til samnemenda sinna.

Verkefni eru unnin út frá þínum vinnustað og þínum raunveruleika, til þess að hámarka hagnýtingu viðfangsefna hverrar viku.

Efnisskrá

· Númer áfanga · Heiti áfanga · Kennari / kennarar · Upphaf áfanga ·
· 1.1 · Inngangur Stjórnendanáms · Ásdís S. Þorsteinsdóttir · 3.10.2027 ·
· 1.2 · Þekking, leikni og hæfni. · Auðbjörg Björnsdóttir · 10.10.2027 ·
· 1.3 · Ábyrgð stjórnanda, stjórnunarstíll og menning fyrirtækja · Steinunn Ketilsdóttir · 17.10.2027 ·
· 1.4 · Tjáning og tækni leikarans · Edda Björgvinsdóttir og Björgvin Franz Gíslason · 24.10.2027 ·
· 1.5 · Gervigreind · Ari Kristinn Jónsson · 7.11.2027 ·
· 1.6 · Temjum tæknina · Magnús S. Smárason · 14.11.2027 ·
· 1.7 · Samræður, spurningar og samningar · Steinunn Ketilsdóttir · 21.11.2027 ·
· 1.8 · Viðhorf til breytinga – þjálfunarspurningar · Steinunn Ketilsdóttir · 28.11.2027 ·
· 1.9 · Sálfræðilegi samningurinn og vinnuálag · Steinunn Ketilsdóttir · 5.12.2027 ·
· 1.10 · Skipulag vinnumarkaðar, kjarasamningar og réttindi · Jón Rúnar Pálsson · 9.1.2028 ·
· 1.11 · Lögfræðileg ábyrgð stjórnandans · Jón Rúnar Pálsson · 16.1.2028 ·
· 1.12 · Hæfni stjórnenda og annarra millistjórnenda. · Steinunn Ketilsdóttir · 23.1.2028 ·

Inntökuskilyrði

Engin inntökuskilyrði, allir eru velkomnir í námið. Það eina sem þarf er virk nettenging og vilji til að verða betri stjórnandi.

Dagskrá

Stjórnendanámið hefst með Lotu 1 sem byrjar 3. október 2027. Námið er í heild sinni 5 lotur og tekur 2 ár en hægt er að taka það á lengri tíma með pásum. Útskrift hópsins sem hefur nám í október 2026 er í kringum mánaðamót maí/júní 2029.

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

210.000 kr.

3. okt 2027
Fjarnám
4 mánuðir
Símenntun Háskólans á Akureyri