Lestur ársreikninga

Símenntun Háskólans á Akureyri

Lestur ársreikninga

Yfirlit

Ársreikningur segir mikilvæga sögu um rekstur og fjárhagsstöðu fyrirtækis, en það þarf að kunna að lesa úr tölunum. Á þessu hagnýta fjarnámskeiði lærir þú að skilja uppbyggingu ársreikninga, túlka helstu upplýsingar og nýta þær til að taka upplýstari ákvarðanir í rekstri.

Farið verður yfir rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymi og útskýrt hvernig þessir hlutar tengjast. Þátttakendur vinna með raunverulega ársreikninga, reikna mikilvægar kennitölur og þjálfast í að greina rekstur, fjárhagsstöðu og þróun fyrirtækja.

Námskeiðið hentar sérstaklega eigendum og stjórnendum fyrirtækja, sjálfstætt starfandi einstaklingum og þeim sem hyggjast stofna eigin rekstur. Það er einnig gagnlegt fyrir alla sem vilja öðlast betri fjármálaskilning og taka virkari þátt í rekstrarlegum ákvörðunum.

Engrar fyrri þekkingar á bókhaldi eða ársreikningum er krafist.

Hagnýtar upplýsingar

Námskeiðið hefst 2. nóvember og er í 2 vikur. Fundir með kennara eru á fimmtudögum kl. 20:00, þann 5. nóv. og 12. nóv. 2026.

Að námskeiðinu loknu ættir þú að geta

• áttað þig á uppbyggingu og tilgangi ársreiknings

• lesið úr rekstrarreikningi, efnahagsreikningi og sjóðstreymi

• skilið tengslin á milli einstakra hluta ársreikningsins

• reiknað og túlkað helstu kennitölur fyrirtækja

• metið afkomu, lausafjárstöðu, skuldsetningu og rekstrarhæfi

• komið auga á þróun og atriði sem kalla á nánari skoðun

• nýtt upplýsingar úr ársreikningum við ákvarðanatöku

Fyrirkomulag fjarnáms

Kennari setur inn fyrirlestra sem þátttakendur geta hlustað á þegar þeim hentar. Æfingar og verkefni verða lögð fyrir þar sem raunverulegir ársreikningar verða greindir og helstu kennitölur reiknaðar.

Einu sinni í viku hittumst við á fjarfundi þar sem hægt verður að koma með spurningar, raundæmi og farið verður yfir verkefnið. Krossapróf verða opin á kennslusvæðinu þar sem þátttakendur geta æft sig og dýpkað skilninginn á efninu. Engar einkunnir eru gefnar og þátttakendur geta tekið krossaprófin eins oft og þeir vilja.

Efnisskrá

Við lok námskeiðsins eiga þátttakendur að hafa öðlast betri skilning á uppsetningu ársreikninga og hvernig á að lesa úr þeim. Þátttakendur geta nýtt þætti námskeiðsins til þess að taka betri ákvarðanir byggðar á upplýsingum sem þeir túlka úr ársreikningum.

Inntökuskilyrði

Engin inntökuskilyrði eru. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á að kynnast betur hvernig rekstur fyrirtækis virkar og þeim sem hafa hug á að stofna fyrirtæki og/eða rekstur.

Dagskrá

Námskeiðið er tvær vikur og byggist upp á fyrirlestrum, fjarfundum, verkefnum og krossaprófum til æfingar.

Dagskrá

· · Fyrirlestrar · Fjarfundir · Verkefni og krossapróf
· Vika 1 · · ·
· · Uppsetning ársreikninga · Fjarfundur 1 · Krossapróf
· · Helstu upplýsingar í ársreikningum · 5.11.2026 ·
· · · ·
· Vika 2 · · ·
· · Kennitölur og fjárhagsupplýsingar · Fjarfundur 2 12.11.2026 · Útreikningur á kennitölum
· · Túlkun ársreikninga · · Túlkun upplýsinga
· · · ·

Ath. Tímasetningar geta breyst.

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

18.000 kr.

2. nóv 2026
Fjarnám
2 vikur
Símenntun Háskólans á Akureyri