
Símenntun Háskólans á Akureyri
Launafulltrúinn - Frá launavinnslu til sérfræðiþekkingar
Yfirlit
Viltu ná tökum á launamálum og verða öruggari í einu mikilvægasta hlutverki fyrirtækisins?
Á þessu hagnýta og spennandi námskeiði öðlast þátttakendur traustan grunn í launavinnslu og fá innsýn í þau fjölmörgu atriði sem launafulltrúar þurfa að kunna á hverjum degi.
Við förum yfir laun, skatt, orlof, veikindi, fæðingarorlof, frádrátt, kjarasamninga og réttindi starfsfólks – en leggjum jafnframt áherslu á verklag, nákvæmni og þau raunverulegu verkefni sem koma upp í launavinnslu.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið er fjórar vikur og byggist upp á fyrirlestrum, fjarfundum, verkefnum og krossaprófum til æfingar.
Kennari setur inn fyrirlestra sem þátttakendur geta hlustað á þegar þeim hentar.
Verkefni byggja á raundæmum sem þátttakendur þurfa að vinna úr og koma með lausn á.
Efnisskrá
Á námskeiðinu lærir þú að:
• Skilja helstu reglur og hugtök í launamálum
• Vinna laun á öruggan og skilvirkan hátt
• Túlka kjarasamninga og tengja þá við launavinnslu
• Reikna og meðhöndla orlof, veikindi og aðrar fjarvistir
• Þekkja helstu reglur um skatta og frádrátt
• Takast á við algeng og krefjandi álitaefni í launamálum
• Forðast algeng mistök sem geta haft áhrif á bæði starfsfólk og fyrirtæki
• Byggja upp gott verklag og eftirlit með launavinnslu
Markmiðið er einfalt: Að þú farir af námskeiðinu með meiri þekkingu, meira öryggi og betri tök á launavinnslunni.
Laun eru meira en tölur – þau eru traust, réttindi og ábyrgð.
Inntökuskilyrði
Námskeiðið hentar bæði nýjum og starfandi launafulltrúum, stjórnendum og öðrum sem koma að launamálum og vilja styrkja þekkingu sína.
Dagskrá
Dagskrá
· · Fyrirlestrar · Fjarfundir · Verkefni
· Vika 1 Grunnurinn að launavinnslu · 1. Hlutverk og ábyrgð launafulltrúans. 2. Uppbygging launa og launaliða. 3. Launatímabil, skráning og verklag. 4. Algeng vandamál og hvernig á að leysa þau. · Fjarfundur 1 4. nóvember kl. 20:00 · Við förum yfir raunhæft launadæmi frá upphafi til enda og þátttakendur fá tækifæri til að spyrja spurninga.
· Vika 2 Kjarasamningar og réttindi · 5. Kjarasamningar – hvernig á að lesa og túlka þá. 6. Vinnutími, yfirvinna og álagsgreiðslur. 7. Orlof og orlofsuppgjör. 8. Réttindi starfsfólks og helstu fjarvistir. · Fjarfundur 2 11. nóvember kl. 20:00 · Unnið með raunveruleg dæmi þar sem þátttakendur þurfa að finna réttar niðurstöður út frá kjarasamningum.
· Vika 3 Skattar, frádráttur og fjarvistir · 9. Staðgreiðsla skatta og persónuafsláttur. 10. Lífeyrissjóðir og aðrir frádráttarliðir. 11. Veikindi, veikindalaun og fæðingarorlof. 12. Sértilvik og flóknari launaliðir. · Fjarfundur 3 18. nóvember kl. 20:00 · Praktískar æfingar í útreikningum og farið yfir dæmi þar sem auðvelt er að gera mistök.
· Vika 4 Heilstæð launavinnsla og gæðastarf · 13. Launavinnsla frá A–Ö. 14. Afstemming og eftirlit með launum. 15. Algeng mistök og hvernig við forðumst þau. 16. Góð vinnubrögð, skjalfesting og gæðastjórnun. · Fjarfundur 4 25. nóvember kl. 20:00 · Heilstætt verkefni þar sem þátttakendur vinna úr launatímabili með mismunandi starfsmönnum, launaliðum, fjarvistum og frádráttum.
Ath. Tímasetningar geta breyst.
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
31.000 kr.