
Símenntun Háskólans á Akureyri
Jákvæð leiðtogafærni í starfi og lífi
Yfirlit
Jákvæð forysta er hugtak úr fræðum Kim Cameron innan vinnu- og jákvæðrar sálfræði og fjallar um hvernig við getum skapað aðstæður sem leiða til framúrskarandi árangurs.
Á þessu námskeiði fá þátttakendur hagnýt verkfæri sem nýtast í starfi, hvort sem þeir eru stjórnendur eða vilja efla leiðtogahlutverk sitt í eigin starfi og lífi.
Hagnýtar upplýsingar
Farið verður yfir helstu efnisþætti jákvæðrar forystu:
• styrkleika og dyggðir
• tilgang og merkingu
• tengsl og samskipti
• hugarfar og orku
• vinnustaðamenningu og sálfræðilegt öryggi
Við skoðum:
• hvað einkennir uppbyggilega vinnustaðamenningu
• hvernig samskipti á vinnustað skapa traust og árangur
• hvernig nýta má styrkleika markvisst í starfi
• hvernig merking og tilgangur auka skuldbindingu og frammistöðu
• hvaða hegðun eflir jákvæða menningu og sjálfbæran árangur
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið er fjarnám og kennt á netinu gegnum Zoom á þriðjudögum kl. 19-21.
Efnisskrá
Helstu efnisþættir:
Hvað er jákvæð leiðtogafærni
Dyggðir og styrkleikar
Sálrænt öryggi og vinnustaðamenning
Hugarfar og orka
Tengsl og samskipti
Tilgangur og merking
Dagskrá
Markmið námskeiðsins er að skoða hvernig starf getur orðið vettvangur vaxtar, merkingar og styrkleika – ekki aðeins verkefni sem þarf að sinna, heldur einnig hlutverk og árangur sem styður við persónulegan og faglegan þroska.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á virkni þátttakenda, umræður og verkefni sem nýtast beint í leik og starfi.
Dagsetningar Zoom funda:
20. október
27. október
3. nóvember
10. nóvember
17. nóvember
24. nóvember
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
79.900 kr.

.png%3Frepresentation%3Dlarge&w=3840&q=75)
