
Símenntun Háskólans á Akureyri
Innleiðing sem virkar; Plan-Do-Check-Act
Yfirlit
Farið er í gegnum aðferð sem virkar þegar verið er að innleiða verklag eða ferli. Plan-Do-Check-Act er margreynd aðferð sem virkar í ýmsum aðstæðum og oft tengd við ferlisnálgun. Við tryggjum árangur, allt frá greiningu og ákvarðanatöku og til raunverulegra aðgerða og breytinga. Aðferðafræðin nýtist víða, svo sem í breytingastjórnun, ferlanálgun, gæðastjórnun, öryggisstjórnun, umhverfisstjórnun sem og í daglegum rekstri.
Hagnýtar upplýsingar
Námsefnið eru fyrirlestrar á netinu og fjarfundur. Enginn undirbúningur nauðsynlegur.
Fyrirkomulag fjarnáms
Alfarið fjarnám. Þrír fyrirlestrar á netinu (upptökur), einn zoom fundir með kennara þar sem verður tæpt á helstu atriðum úr fyrirlestrum, spurningum svarað og gefið færi á umræðum.
Efnisskrá
Þátttakandi mun öðlast skilning á aðferðafræði Plan-Do-Check-Act og hvernig hún nýtist í fyrirtækjum og öðrum skipulagsheildum. Farið er í gegnum hvert þrep og vísað í raunveruleg dæmi sem sýna hvernig PDCA er notað við að innleiða úrbætur, nýtt verklag eða breytingar. Að loknu námskeiði á nemandi að vera í stakk búin að nýta PDCA. Engin verkefnavinna. Boðið upp á fjarfund þar sem hægt er að koma með spurningar, einnig hægt að senda spurningar í tölvupósti til kennara á meðan námskeiði stendur.
Dagskrá
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 2. mars 2027.
Þann 2. mars opnast fyrir fyrsta fyrirlesturinn, 3. mars fyrir annan fyrirlesturinn og 4. mars fyrir þriðja fyrirlesturinn.
Zoom-fundur verður haldinn þriðjudaginn 9. mars kl. 16:30.
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
39.900 kr.