Heimilisofbeldi: Þekking, viðbrögð og úrræði

Símenntun Háskólans á Akureyri

Heimilisofbeldi: Þekking, viðbrögð og úrræði

Yfirlit

Heimilisofbeldi er flókið samfélagslegt vandamál sem hefur djúpstæð áhrif á börn og fullorðna. Til að geta brugðist rétt við þurfum við að þekkja einkenni, afleiðingar og úrræði sem eru í boði – og kunna að hlusta á þolendur af virðingu og með skilningi.

Markmið námskeiðsins er að veita starfsfólki heilbrigðis-, félagsþjónustu og öðrum fagaðilum sem vinna með fjölskyldum innsýn í heim heimilisofbeldis, auka meðvitund og þekkingu um birtingarmyndir og afleiðingar þess, og efla færni þeirra til að bregðast við með faglegum hætti.

Fjallað er um heimilisofbeldi með áherslu á skilgreiningar, einkenni, afleiðingar, úrræði og viðbrögð. Námskeiðið miðar að því að veita fræðslu, auka meðvitund og styrkja þátttakendur í að takast á við heimilisofbeldi í starfi sínu.

Hagnýtar upplýsingar

Námskeiðið hentar öllum sem vinna með börnum, fjölskyldum eða einstaklingum – s.s. félagsráðgjöfum, kennurum, skólastjórnendum, heilbrigðisstarfsfólki, lögreglu, prestum og öðrum sem koma að velferð fólks í samfélaginu.

Af hverju að taka þátt? Þekking og viðbragð geta skipt sköpum fyrir einstakling í neyð. Með því að styrkja eigin færni og meðvitund getur þú lagt þitt af mörkum til að auka öryggi og styðja þolendur ofbeldis.

„Lærðu að greina, skilja og bregðast við heimilisofbeldi – því ofbeldi varðar okkur öll.“

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið fer alfarið fram í fjarkennslu í gegnum Zoom. Engar upptökur verða af námskeiðinu.

Efnisskrá

Yfirlit yfir það sem kennt er:

• · Skilgreiningar og tölfræði: Hvað er heimilisofbeldi, algengi þess og staðan á Íslandi.

• · Birtingarmyndir ofbeldis: Líkamlegt, andlegt, kynferðislegt, fjárhagslegt, stafrænt ofbeldi, gasljóstrun o.fl.

• · Einkenni og afleiðingar: Hjá börnum og fullorðnum – andlegar, líkamlegar og félagslegar afleiðingar.

• · Áhættuþættir: Einstaklingsbundnir, félagslegir og samfélagslegir þættir.

• · Ofbeldishringurinn og þróun ofbeldis í samböndum.

• · Viðbrögð fagfólks: Hvernig á að hlusta, taka á móti upplýsingum, gera mat og áhættumat.

• · Tilkynningarskylda og lagaumhverfi, sérstaklega gagnvart börnum.

• · Úrræði og þjónusta.

• · Valdefling og stuðningur fagfólks við þolendur.

• · Hindranir í að leita sér hjálpar og mikilvægi valdeflingar og áfallamiðaðrar nálgunar.

Eftir námskeiðið ættu þátttakendur:

• · Að þekkja mismunandi birtingarmyndir heimilisofbeldis.

• · Að geta séð helstu einkenni og afleiðingar ofbeldis hjá börnum og fullorðnum.

• · Að skilja áhættuþætti sem tengjast heimilisofbeldi.

• · Að hafa verkfæri til að hlusta og bregðast við af öryggi og fagmennsku í samskiptum við þolendur.

Námskeiðið fer fram með fyrirlestrum og umræðum þátttakenda.

Dagskrá

Námskeiðið opnar 16. október og er efnið opið á kennsluvef námskeiðsins til 6. nóvember. Fjarfundir fara fram miðvikudagana 21. október og 4. nóvember kl. 13:00 – 15:00.

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

39.000 kr.

16. okt 2026
Fjarnám
3 vikur
Símenntun Háskólans á Akureyri