Grunnur að rekstri og bókhaldi

Símenntun Háskólans á Akureyri

Grunnur að rekstri og bókhaldi

Yfirlit

Námskeiðið Grunnur að rekstri og bókhaldi hentar öllum þeim sem vilja stofna sinn eigin rekstur og/eða fyrirtæki. Einnig þeim sem eru nú þegar í rekstri en vilja taka virkari þátt í fjármálahluta rekstrarins.

Námskeiðið er fjórar vikur og byggist upp á fyrirlestrum, fjarfundum, verkefnum og krossaprófum til æfingar.

Hagnýtar upplýsingar

Námskeiðið hefst 1. febrúar og er í 4 vikur. Fundir með kennara eru á miðvikudögum kl. 20:00.

Fyrirkomulag fjarnáms

Kennari setur inn fyrirlestra sem þátttakendur geta hlustað á þegar þeim hentar. Verkefni verður gegnumgangandi í gegnum námskeiðið þar sem við stofnum fyrirtæki, færum í bókhald félagsins, reiknum laun, gerum upp VSK tímabil, kaupum og seljum eignir og vinnum með öll þau helstu tilfelli sem komið geta upp í rekstri.

Einu sinni í viku hittumst við á fjarfundi þar sem hægt verður að koma með spurningar, raundæmi og farið verður yfir verkefnið. Krossapróf verða opin á kennslusvæðinu þar sem þátttakendur geta æft sig og dýpkað skilninginn á efninu. Engar einkunnir eru gefnar og þátttakendur geta tekið krossaprófin eins oft og þeir vilja.

Efnisskrá

Við lok námskeiðsins eiga þátttakendur að hafa öðlast betri skilning á rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi, haft grunnskilining á því hvernig bókhald er fært, hvernig laun eru reiknuð og hvernig ársreikningar virka.

Inntökuskilyrði

Engin inntökuskilyrði eru. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á að kynnast betur hvernig rekstur fyrirtækis virkar og þeim sem hafa hug á að stofna fyrirtæki og/eða rekstur.

Dagskrá

Dagskrá

Fyrirlestrar

Fjarfundir

Verkefni og krossapróf

Vika 1

Grunnatriði í excel
Stofnun rekstrar
Grunnþættir bókhalds

Fjarfundur 1
03.02.2027
kl. 20:00

Byrjum að vinna í verkefnaskjalinu.
Stofnum fyrirtæki og byrjum reksturinn.
Færum upphafsfærslur ársins.

Vika 2

Virðisaukaskattur
Tekjur og útgáfa reikninga
Frádráttarbær kostnaður

Fjarfundur 2
10.02.2027
kl. 20:00

Gefum út reikninga og færum tekjur.
Tökum á móti reikningum frá birgjum og gerum upp VSK.

Vika 3

Laun og launatengd gjöld
Mannauðsstjórnun
Markaðsstarf

Fjarfundur 3
17.02.2027
kl. 20:00

Reiknum laun og færum í bókhaldið.

Vika 4

Afstemmingar og aðalbók
Ársreikningurinn
Skattframtal og álagning

Fjarfundur 4
24.02.2027
kl. 20:00

Stemmum af alla þætti aðalbókarinnar.
Stillum upp ársreikningi og reiknum kennitölur.
Fyllum út skattframtalið og reiknum út álagningu.

Ath. Tímasetningar geta breyst.

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

31.000 kr.

1. feb 2027
Fjarnám
15 klst
Símenntun Háskólans á Akureyri