
Símenntun Háskólans á Akureyri
Fjárhagserfiðleikar og andleg vellíðan (Tilfinningastjórnun peninga)
Yfirlit
Einstaklingar og fjölskyldur í þrálátum greiðsluerfiðleikum og miklum fjárhagskvíða hafa oft á tíðum ekki yfirsýn yfir það hvernig best er að taka á greiðsluvanda og jafnvel ekki getu til þess vegna yfirgnæfandi fjáhagskvíða.
Námskeið þetta er ætlað einstaklingum sem vilja:
-ná yfirsýn yfir greiðsluerfiðleika
-ná stjórn á fjárhagskvíða
-skilja tengsl fjárhags og tilfinninga
-læra að lesa í og leysa úr vanskilasögu sinni
Hagnýtar upplýsingar
Farið verður yfir vinnubókina Peningar og fjárhagsleg heilsa, gefin út af Vandalaust greiðsluerfiðleikaráðgjöf, verkefni, úrræði sem eru í boði, yfirsýn skuldbindinga og hvernig á að gera fjárhagsáætlun.
Gott er ef nemendur kynna sér vinnubók meðfram námskeiðinu og úrræði sem í boði er auk þess að skrá niður skuldbindingar sínar til að vera undirbúin fyrir verkefni og ná yfirsýn yfir fjármál sín.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið fer fram í fjarnámi. Kennari setur inn stutta fyrirlestra sem þátttakendur geta horft á þegar þeim hentar, auk verkefna sem unnin eru samhliða námskeiðinu. Zoom fundir fara fram á fimmtudögum kl. 19:00–20:00.
Efnisskrá
Á námskeiðinu verður farið yfir:
-hvert er hægt að leita
-tilfinningastjórnun og peninga
-hvað fjárhagskvíði er
-gerð fjárhagsáætlunar
-hvaða úrræði eru í boði
-hvernig best er að leysa úr vandanum á lausnamiðaðan hátt
Námsefni og verkefni:
-vinnubókina Peningar og fjárhagsleg vellíðan
-vinnubókina Úrræði við streitu og kvíða
-vinnubókina Mín framtíðarsýn
-einstaklingsverkefni og hópverkefni
Ekki verður gefin einkunn fyrir námskeiðið.
Dagskrá
Námskeiðið fer fram 16.–29. nóvember 2026.
Dagsetningar Zoom funda:
-19. nóvember kl. 19:00–20:00
-26. nóvember kl. 19:00–20:00
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
24.000 kr.