
Símenntun Háskólans á Akureyri
Allar loturnar í Stjórnendanáminu
Yfirlit
Skráðu þig í allar loturnar í Stjórnendanáminu með einni greiðslu.
Hægt er að taka námið á tveimur árum eða skipta því niður á lengri tíma.
Endurmenntun fyrir stjórnendur og millistjórnendur
Kröfur í nútíma rekstri eru miklar og veröldin breytist á ógnarhraða. Því er nauðsynlegt að hafa yfirgripsmikla þekkingu til að sinna starfinu sem skyldi.
Vinnumarkaðurinn þarf stjórnendur og millistjórnendur sem hafa rétt verkfæri á höndum sér til að bregðast við breytingum jafnhratt og þær koma. Ef eina verkfærið í boði er hamar verða öll vandamálin nagli. Með því að búa yfir góðri verkfærakistu er hægt að bregðast við ólíkum vandamálum á mismunandi hátt sem leiðir af sér betri og skilvirkari stjórnun.
Námið veitir:
• Fagleg og sjálfstæð vinnubrögð
• Aukið sjálfstraust
• Meiri starfsánægju
• Aukin tækifæri á vinnumarkaði
Hagnýtar upplýsingar
Næsta upphafsdagsetning er 3. október 2027
• Unnið er með raunveruleg viðfangsefni sem veita nemendum aukna færni í starfi
• Farið er yfir stjórnun, verkstýringu og mannaforráð
• Námsmat tekur tillit til ólíkra þarfa nemenda
Fyrirkomulag fjarnáms
Námið er að öllu leyti kennt í fjarnámi. Allt efni er inn á kennsluvef og í hverri viku er fjarfundur með nemendum og kennara.
Í hverri viku gera nemendur vikuverkefni og svara umræðuspurningu/m.
Inntökuskilyrði
Engar forkröfur eru gerðar um menntun
Dagskrá
Upplýsingar um lotur
Námið samanstendur af fimm sjálfstæðum lotum. Æskilegt er að ljúka lotu 1 áður en lota 2 er tekin en það er þó ekki skylda.
Hver lota skiptist í áfanga sem eru mismargir eftir lotum. Hver áfangi hefst á sunnudegi og tekur eina viku. Gert er ráð fyrir að nemendur verji um 10 klst. í nám og verkefnavinnu í hverri viku. Hóparnir hittast reglulega á fjarfundum á netinu og hafa greiðan aðgang að kennurum meðan á námi stendur.
LOTURNAR ERU EFTIRFARANDI:
Lota 1: Ég - stjórnandinn/millistjórnandinn
• 12 áfangar - 13 vikur
• Fjallar um einstaklinginn í þeirri stöðu sem hann gegnir; „hvers vegna er ég hér", „hversu hæfan tel ég mig vera og hvað þarf ég til að auka hæfni mína?" og „Hver er afstaða mín til fyrirtækis, yfirmanna, samstarfsmanna og undirmanna?"
• Með nýjum áherslum í náminu er einnig skoðað hvernig stjórnendur geta nýtt gervigreind sem tæki til að efla eigið starf, bæta ákvarðanatöku og auka áhrif í starfi
✨ 3. október 2027 - 30. janúar 2028 (jólafrí 12.12.27-9.01.28).
Lota 2: Stjórnun mannauðs
• 12 áfangar - 12 vikur
• Fjallar um meginatriði mannauðsstjórnunar, bæði í skipulagseiningu (deild, sviði, útibúi) og skipulagsheild (fyrirtæki, stofnun).
• Fjallar um starfsaðstöðu, velferð (s.s. öryggismál, heilsufar), fjarvistir og ýmis vandamál sem fyrirtæki og starfsmenn glíma við - ásamt lausnum.
✨ 6. febrúar 2028 - 14. maí 2028 (páskafrí 9.4.-23.4.28)
✨ Sumarfrí 14. maí - 3. september 2028.
Lota 3: Fyrirtækið – Skipulag
• 10 áfangar - 11 vikur
• Fjallað um innra skipulag fyrirtækja sem stjórnandi/millistjórnandi þarf að hafa þekkingu á og hæfni til að takast á við hverju sinni, s.s stjórnkerfisskipulag og ákvarðanatöku á þeim vettvangi, stefnuvinnu og samkeppnishæfni, formlegt starfsmannahald, gæðakerfi, öryggismál á vinnustað og viðhald tækja, einkum með tilliti til öryggis og framleiðni.
✨ 3. september 2028 - 19. nóvember 2028.
Lota 4: Fyrirtækið – Rekstur
• 9 áfangar - 10 vikur
• Stjórnendur / millistjórnendur eru leiddir í gegnum þau atriði í rekstraráætlunum sem þeir þurfa að standa klárir á. Þetta lýtur að markmiðum, ferlum, framleiðnimælingum, hagræðingu og tölulegum rekstrarupplýsingum.
✨ 26. nóvember 2028 - 4. mars 2029 ( jólafrí 17.12.28-7.1.29).
Lota 5: Fyrirtækið í nútíð og framtíð
• 8 áfangar - 8 vikur
• Sjónum beint að fyrirtækinu í nær- og fjærumhverfi sínu, eigendum, viðskiptavinum, keppinautum, birgjum, stofnunum og stjórnvöldum. Fjallað er um þessa þætti í ljósi stefnu skipulagseiningar, t.d. umhverfis- og samfélagsstefnu.
✨ 11. mars 2029 - 20. maí 2029 (páskafrí 25.3-8.4.2029).
Um Símenntun Háskólans á Akureyri
Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð
1.050.000 kr.

.png%3Frepresentation%3Dlarge&w=3840&q=75)
