Tímastjórnun

Akademias

Tímastjórnun

Um hvað er námskeiðið?

Námskeiðið fjallar um helstu aðferðir til að skipuleggja tímann á skilvirkan hátt þannig að stjórnendur og starfsmenn geti bæði hámarkað afköst og skapað gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Einnig er farið yfir algengar mýtur um tímastjórnun og hvernig hægt er að vinna markvisst án þess að hlaða á sig óþarfa álagi.

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi

• öðlist innsýn í tilgang þess að skipuleggja sig vel, forgangsraða og nýta tímann á skynsamlegan hátt
• fái betri skilning á því hvernig má hámarka vinnudaginn með skýrum fókus og markmiðum
• læri skipulögð vinnubrögð og hvernig hægt er að nýta dagatal og önnur verkfæri til að ná meiri markvirkni með því að gera réttu hlutina á réttum tíma

Fyrir hverja?

Fyrir stjórnendur og starfsmenn sem vilja skerpa fókus, bæta vinnubrögð og nýta tímann á skilvirkari hátt.

Um Akademias

Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð fyrir atvinnurekendur

190.000 kr. + vsk.

12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.

Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.

Rafrænt
45 mín
Akademias