Stafræni veitingaskólinn

Akademias

Stafræni veitingaskólinn

Stafræni veitingaskólinn er námskeið fyrir þá sem starfa í þjónustu veitinga og/eða afgreiða á bar. Farið er ítarlega yfir hvað ber að hafa í huga við framsetningu matar og drykkja og hversu mikilvægt er að vera fágaður í framkomu við viðskiptavini til að þeir fái sem besta þjónustuupplifun.

Markmið námskeiðsins er að nemandi

  • kunni afgreiðslu á borðvíni, hvernig taka skal á móti borðapöntun í veitingasal og hvernig við berum okkur að þegar við notum bakkann, bæði í sal og á bar
  • geti farið með borðbúnað á réttan hátt og stillt upp, læri að bera fram með þremur diskum og hvernig er hreinsað af diskum þegar þeir eru fjarlægðir frá gestum
  • kynnist og læri að meðhöndla öll þau verkfæri sem notuð eru á framreiðslu á drykkjum, farið yfir helstu tegundir áfengis á bar og skrauti sem er notað ásamt því hvað ber að varast þegar við þjónum viðskiptavinum á veitingastað

Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja og starfa í veitingageiranum og vilja vera með grunnatriði og tækni á hreinu til að þjónustuupplifun viðskiptavinarins sé sem best. Margir hagnýtir og góðir punktar koma fram á þessu námskeiði sem auðvelt er að tileinka sér í einkalífinu einnig.

Um Akademias

Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð fyrir atvinnurekendur

190.000 kr. + vsk.

12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.

Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.

Rafrænt
59 mín
Akademias