
Akademias
Stafræn umbreyting og leiðtogar
Stafrænar umbreytingar eru að gjörbreyta hvernig fyrirtæki starfa, hvernig neytendur versla og upplifa og hvernig starfsmenn vinna. Drifkraftur breytinga er alltaf að aukast og nú þegar er ljóst að flest störf munu breytast og skapandi eyðilegging mun gera úrelt þau fyrirtæki sem leitast ekki við að breytast í takt við tímann. Mikil þörf er fyrir stafræna leiðtoga sem skilja að stafræn umbreyting er ekki vegferð sem snýst um útlit heldur kjarnafærni fyrirtækisins.
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
- skilji hvernig stafrænar umbreytingar munu geta haft gríðarleg áhrif og eru tækifæri fyrir framtíðina og átti sig á hlutverki stafræns leiðtoga í fyrirtækjum
- læri og skilji hvernig stafrænn leiðtogi þarf að geta búið til þverfagleg teymi sem hafa umbreytingar að leiðarljósi og sem miða að því að skerpa á kjarnafærni fyrirtækja
Fyrir hverja?
Stafræn umbreyting og leiðtogar er fyrir alla þá sem vilja kynna sér þær umbreytingar sem eru að verða vegna stafrænnar þróunar og þá sem vilja leiða breytingar sem byggja á stafrænni umbreytingu innan fyrirtækja.
Um Akademias
Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð fyrir atvinnurekendur
190.000 kr. + vsk.
12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.

.png%3Frepresentation%3Dlarge&w=3840&q=75)
