
Akademias
Lífeyrismál á mannamáli
Hvað veistu um lífeyrismál? Viltu vita meira?
Á þessu námskeiði verður farið yfir helstu þætti er varðar lífeyrisréttindi, sparnað og hvernig þú hámarkar þín lífeyrisréttindi til lengri tíma. Nemendur kynnast grunnatriðum lífeyriskerfisins á Íslandi, þar á meðal muninum á almennum lífeyrisréttindum og séreignarsparnaði.
Fjallað verður um mikilvægi þess að huga að réttindum og hvernig hægt er að hámarka þau með því að nýta þau tækifæri sem kerfið býður upp á. Einnig mikilvægi þess hvað nýir aðilar á vinnumarkaði þurfa sérstaklega að hafa í huga.
Fyrir hverja?
Alla þátttakendur á atvinnumarkaði sem vilja fylgjast með sínum réttindum og leggja línurnar fyrir framtíðina.
Um Akademias
Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð fyrir atvinnurekendur
190.000 kr. + vsk.
12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.


