
Akademias
Hinsegin fræðsla fyrir vinnustaði
Um hvað er námskeiðið?
Hver er lykillinn af góðri og inngildandi vinnustaðamenningu? Af hverju koma hinsegin málefni okkur við? Á þessu námskeiði er farið yfir helstu hugtök tengd hinsegin samfélaginu, samskipti og öráreitni ásamt því hvernig hægt er að stuðla að jákvæðri og inngildandi vinnustaðamenningu.
Námskeiðið samanstendur af stuttum og hnitmiðuðum fræðslum þar sem við ræðum
- af hverju hinsegin málefni koma okkur við.
- helstu hugtök og hópa hinsegin samfélagsins.
- af hverju ómeðvitaðir fordómar skjóta upp kollinum, samskipti og hvernig hægt er að forðast öráreitni.
- hvernig fyrirtæki geta byggt upp öfluga og inngildandi vinnustaðamenningu.
Að loknu námskeiðinu hafa þátttakendur öðlast grunnþekkingu á hinsegin málefnum, vita hvert þeir geta leitað eftir frekari aðstöð eða þekkingu og geta rætt hinsegin mál ef öryggi.
Fyrir hverja?
Efnið hentar öllum sem vilja efla starfsánægju, auka þekkingu og stuðla að jákvæðum samskiptum – hvort sem um er að ræða stjórnendur, fólk í þjónustustörfum eða aðra starfsmenn.
Um Akademias
Akademias er meðal öflugustu fræðsluaðila landsins fyrir stjórnendur og sérfræðinga. Boðið er upp á rafræn námskeið í leiðtogaþjálfun, verkefnastjórnun, markaðsmálum, gervigreind og fleiru — aðgengileg þegar þér hentar.
Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.
Verð fyrir atvinnurekendur
190.000 kr. + vsk.
12 mánaða aðgangur. Eitt verð óháð fjölda þátttakenda.Akademias sendir reikning á fyrirtækið eftir pöntun. Engin kortagreiðsla fyrir þetta námskeið.


