Áhættumat - Hvernig og hvar?

Símenntun Háskólans á Akureyri

Áhættumat - Hvernig og hvar?

Yfirlit

Áhættumat er notað til að bera kennsl á áhættu, geina líkur ásamt alvarleika atviks og hvernig við innleiðum aðgerðir til að stjórna aðstæðum. Þetta kröftuga verkfæri er notað víða í fyrirtækjum og öðrum skipulagsheildum, t.a.m. er það fléttað inn í gæðastjórnun, öryggisstjórnun, umhverfisstjórnun og almennt í rekstur. Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að geta sett upp áhættumat. Námskeiðið nýtist öllum sem koma að gerð áhættumats.

Hagnýtar upplýsingar

Námsefni eru fyrirlestrar á netinu. Kennari mun benda á fróðlegt efni sem er aðgengilegt á netinu. Ekki þarf að undirbúa sig sérstaklega áður en námskeið hefst. Efnistök eru heimfærð á raunveruleikann, raundæmi úr atvinnulífinu.

Fyrirkomulag fjarnáms

Alfarið fjarnám. Þrír fyrirlestrar á netinu (upptökur), einn zoom fundir með kennara þar sem verður tæpt á helstu atriðum úr fyrirlestrum, spurningum svarað og gefið færi á umræðum.

Efnisskrá

Þátttakendur kynnast því hvernig áhættumat er gert og hvar það er notað. Engin verkefnavinna. Kennsla fer fram með fyrirlestrum á netinu. Boðið verður upp á fjarfund til að koma með spurningar. Einnig mun kennari svara spurningum í tölvupósti. Gert er ráð fyrir því að nemandi geti útbúið áhættumat að loknu námskeiði.

Dagskrá

Námskeiðið hefst mánudaginn 1. febrúar 2027.

Þann 1. febrúar opnast fyrir fyrsta fyrirlesturinn, 2. febrúar fyrir annan fyrirlesturinn og 3. febrúar fyrir þriðja fyrirlesturinn.

Zoom-fundur verður haldinn þriðjudaginn 9. febrúar kl. 16:30.

Um Símenntun Háskólans á Akureyri

Stefna Símenntunar Háskólans á Akureyri er að vera leiðandi í sveigjanlegri símenntun með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval námskeiða og náms í fjarnámi, staðarnámi og blönduðu námi. Þannig komum við til móts við þarfir samfélagsins með námi sem hentar öllum óháð búsetu. Með því viljum við efla færni einstaklinga á vinnumarkaði og stuðla að stöðugri uppfærslu þekkingar til framtíðar.

Leiðandi fræðsluaðili á Íslandi.

Verð

39.900 kr.

1. feb 2027
Fjarnám
3 klst
Símenntun Háskólans á Akureyri